Auglýsingaskilti í Garðabæ - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn og umsögn Vegagerðarinnar til næstu endurskoðunar aðalskipulags sem mun fjalla um stefnu Garðabæjar um skilti og merkingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn um staðsetningar auglýsingaskilta á völdum stöðum nærri stofnbrautum og tengibrautum ásamt umsögn Vegagerðarinnar.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn Snjallrása ehf um hugmyndir um þrjá staði þar sem fyrirtækið hefur hug á að staðsetja auglýsingaskjái á áberandi stöðum í bæjarlandi við stofnbrautir. Skjáirnir eru 20-24 m2 að flatarmáli með stillanlegu birtustigi.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og leggur nefndin til að óskað verði eftir umsögn Vegagerðarinnar m.a. með tilliti til öryggissjónarmiða. Skoða þarf hvort að hugmyndirnar samrýmist þeirri stefnu sem sett er fram í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 um skilti.