Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 13/8 ´24.

Málsnúmer 2408004F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (944). fundur

Almar Guðmundsson ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Áréttaði hann bókun bæjarráðs um að bæjarstjóra sé falið að gæta hagsmuna Garðabæjar gagnvart Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þannig að sjóðurinn greiði Garðabæ í samræmi við raunkostnað skólamáltíða og raunfjölda nemenda í þjónustunni. Þá áréttaði hann jafnframt bókun bæjarráðs um að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að halda utan um þann kostnað sem fellur til vegna málsins, nýtingu áskrifta, umfang matarsóunar og greina hvernig innleiðing gjaldfrjálsra skólamáltíða tekst í grunnskólum Garðabæjar. Þá ræddi Almar jafnframt 11. tl., erindi Hafnarfjarðar - deiliskipulag borteiga í sunnanverðu Kapelluhrauni og bókaði að erindinu verði jafnframt vísað til umhverfisnefndar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Almar Guðmundsson tók aftur til máls og ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 6.tl., bréf frá Strætó bs. um aukið rekstrarframlag vegna hækkunar kostnaðar við aðkeyptan akstur.

Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála: