Beint í efni

11. (944). fundur

15.08.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar

11. (944). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

15.08.2024

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Gunnar Valur Gíslason, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. júní 2024 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2406026F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 25/6 ´24.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl., Garðabæjarleiðina lykiltölur í leikskólamálum - kynningu.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 10.tl., styrkbeiðni Hestamannafélagsins Spretts vegna Landsmóts hestamanna 2024. Óskaði hann hestamannafélaginu til hamingju með glæsilegt landsmót.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl., Garðabæjarleiðina lykiltölur í leikskólamálum - kynningu.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 1.tl., Garðabæjarleiðina lykiltölur í leikskólamálum - kynningu.

Fundargerðin sem er 11. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2406036F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 2/7 ´24.

Enginn kvaddi sér hljóðs.

Fundargerðin sem er 5. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2407003F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 9/7 ´24.

Enginn kvaddi sér hljóðs.

Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2407009F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 16/7 ´24.

Enginn kvaddi sér hljóðs.

Fundargerðin sem er 9. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2407019F

05

Fundargerð bæjarráðs frá 30/7 ´24.

Enginn kvaddi sér hljóðs.

Fundargerðin sem er 2. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2408004F

06

Fundargerð bæjarráðs frá 13/8 ´24.

Almar Guðmundsson ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Áréttaði hann bókun bæjarráðs um að bæjarstjóra sé falið að gæta hagsmuna Garðabæjar gagnvart Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þannig að sjóðurinn greiði Garðabæ í samræmi við raunkostnað skólamáltíða og raunfjölda nemenda í þjónustunni. Þá áréttaði hann jafnframt bókun bæjarráðs um að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að halda utan um þann kostnað sem fellur til vegna málsins, nýtingu áskrifta, umfang matarsóunar og greina hvernig innleiðing gjaldfrjálsra skólamáltíða tekst í grunnskólum Garðabæjar. Þá ræddi Almar jafnframt 11. tl., erindi Hafnarfjarðar - deiliskipulag borteiga í sunnanverðu Kapelluhrauni og bókaði að erindinu verði jafnframt vísað til umhverfisnefndar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

Almar Guðmundsson tók aftur til máls og ræddi 4.tl., gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 6.tl., bréf frá Strætó bs. um aukið rekstrarframlag vegna hækkunar kostnaðar við aðkeyptan akstur.

Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála:

Málsnúmer 2406012F

07

Fundargerð skipulagsnefndar frá 20/6 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2406029F

08

Fundargerð skipulagsnefndar frá 9/7 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2407015F

09

Fundargerð umhverfisnefndar frá 17/7 ´24.

Stella Stefánsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl., snyrtilegt umhverfi 2024.

Ingvar Arnarson tók til máls og ræddi 2.tl., mengunarmælingar 2024.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 2.tl., mengunarmælingar 2024.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2406014F

10

Fundargerð velferðarráðs frá 19/6 ´24.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl., samning um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir, 3.tl., úttekt á samræmdri móttöku flóttafólks og 4.tl., aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 4.tl., aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnfréttismálum 2024-2026.

Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi 4.tl., aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum - 2020-2026.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi jafnréttisstefnu Garðabæjar sem væri í undirbúningi.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401141

11

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25/6 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401135

12

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 17/5 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401607

13

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 26/6 ´24.

Stella Stefánsdóttir tók til máls og ræddi fundargerðina og málefni Reykjanesfólksvangs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2307150

14

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 - lántaka

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 600.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2408_36. Um er að ræða jafngreiðslulán með lokagjalddaga 5. nóvember 2055, með 2,5% árlegum föstum vöxtum allan lánstímann. Virkir vextir eru í samræmi við lið 1.D og eru 3,85%. Lánið er með uppgreiðsluheimild.

Þá gerði bæjarstjóri jafnframt grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga, samtals að fjárhæð kr. 400.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2407_37. Um er að ræða jafngreiðslulán með lokagjalddaga 20. febrúar 2039, með 4,25% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 600.000.000,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi,

auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til fjármögnunar á endurbótum á skólahúsnæði sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og

ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð

sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 400.000.000,- , með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.

Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til vegna byggingar 3.áfanga Urriðaholtsskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."