Beint í efni

Aukið rekstrarframlag vegna hækkunar kostnaðar við aðkeyptan akstur

Málsnúmer 2408082

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (944). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2024, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. (Mál nr. 2408082)

Strætó bs.

Aukið framlag til Strætó bs. vegna kostnaðarauka við aðkeyptan akstur. Kostnaðarhlutdeild Garðabæjar er kr. 14.069.412. - 10720."

Bæjarráð Garðabæjar

02

29. (2130). fundur

Í erindinu kemur fram að fyrir hefði legið við kostnaðaráætlun útboðs um aðkeyptan akstur, að tilboðsverð yrðu hærri en fjárhagsáætlun 2024 gerði ráð fyrir. Á eigendafundi Strætó 3. apríl 2024, var því beint til stjórnar strætó að óska eftir því við aðildarsveitarfélög að gerður yrði viðauki við fjárhagsáætlun þeirra, til að fjármagna þann mismun sem fyrirséður er á samþykktri fjárhagsáætlun vegna aðkeypts akstur og endanlegri niðurstöðu samkvæmt útboði.

Kostnaður umfram áður samþykkta fjárhagsáætlun er áætlaður 188.000.000 kr. Hlutfall framlags Garðabæjar, er 7%, eða kr. 14.069.412.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framangreint framlag sem viðauka við fjárhagsáætlun 2024, samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.