Beint í efni

Framkvæmdir - Undirgöng undir Flóttamannaveg

Málsnúmer 2408587

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (955). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

3. (955). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu, ásamt þeim umsögnum sem bárust á umsagnartíma. Tillagan gerir ráð fyrir göngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Flóttamannaveg, norðan við aðkomu að golfvelli. Umsagnir kalla ekki á breytingar á tillögunni. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

7. (2155). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu, ásamt þeim umsögnum sem bárust á umsagnartíma. Tillagan gerir ráð fyrir göngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Flóttamannaveg, norðan við aðkomu að golfvelli.
Umsagnir kalla ekki á breytingar á tillögunni.
Skiplagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu, ásamt þeim umsögnum sem bárust á umsagnartíma. Tillagan gerir ráð fyrir göngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Flóttamannaveg, norðan við aðkomu að golfvelli.
Umsagnir kalla ekki á breytingar á tillögunni.
Skiplagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson fulltrúi G-listans lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður mótmælir ekki undirgögnum undir Flóttamannaveg að gólfklúbbnum Oddi, en undrast þó áherslurnar hvað undirgögn í hverfinu varðar.
Því undirritaður hefur ítrekað rætt þörfina á slíkum undirgögnum neðar í hverfinu, undir Urriðaholtsstræti, umferðamestu götu hverfisins, að frábærum nýjum gögnustíg yfir Vífilsstaðahraun.
Göng sem myndu tengja hverfið örugglega við aðra hluta bæjarins, ekki síst m.t.t. umferðar barna og unglinga úr hverfinu t.d. að Miðgarði og Ásgarði sem dæmi
Göng sem nýtast allan ársins hring - en gögn að Oddi nýtast aðallega í 3-4 mánuði á ári
Hugmynd um umrædd við göng hefur í umræðunni þráfaldlega verið vísað á bug á grunni þess að það sé ekki hægt og eða sé óþarfi því þarna séu umferðarljós.
Mætti þá með sömu rökum e.t.v. spara kostnað við undirgöng að Oddi og setja samskonar gönguljós við Flóttamannaveg að Oddi
Undirritaður fer því hér með fram á að möguleg undirgögn undir Urriðaholtsstræti neðar í hverfinu, verði því jafnframt skoðuð."
Fulltrúar D-listans Björg Fenger, Kjartan Vilhjálmsson og Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Á Flóttamannavegi er umferð hröð og nánast engar ráðstafanir til staðar til að hægja á umferð. Undirgöng auka því verulega öryggi barna, unglinga og annarra sem leið eiga á golfvöllinn og önnur útivistarsvæði. Á Urriðaholtsstræti er umferð mun hægari enda hefur verið gripið til margþættra ráðstafana til að hægja á umferð, með upphækkunum og umferðarljósum. Aldrei hefur verið fullyrt að undirgöng undir Urriðaholtsstræti séu óþarfi en hitt er rétt að landhalli og aðrar aðstæður gera það illmögulegt að koma þeim fyrir þar.“

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

17. (950). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austur sem gerir ráð fyrir undirgöngum undir Flóttamannaveg til móts við Kinnargötu 68. Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

06

42. (2143). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austur sem gerir ráð fyrir undirgöngum undir Flóttamannaveg til móts við Kinnargötu 68.
Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

14. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urrriðaholts austur sem gerir ráð fyrir undirgöngum undir Flóttamannaveg til móts við Kinnargötu 68.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.