Birkiholt 13 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2409436
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
13. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja fyrirspurn er varðar uppbyggingu á skjólvegg og smáhýsi við lóðarmörk Birkiholts 13 og opins svæðis í landi Garðabæjar. Smáhýsið er 14,5 m² og 2,4 m á hæð. Grindverkið er frá 0,9-1,8 m á hæð. Engin ákvæði eru um smáhýsi í deiliskipulagi Breiðamýri og norðanvert Sviðholt. Garðabær er eigandi aðliggjandi lands og því þarf samþykki sveitarfélagsins fyrir smáhýsi sem er nær lóðarmörkum en 3 m. Áður en skipulagsstjóri afgreiðir málið fyrir hönd Garðabæjar skal samþykki allra eigenda Birkiholts 7, 9 og 11 liggja fyrir.