Framkvæmdir - Stofnlögn hitaveitu milli Hraunhóla og Hraunholtslækjar
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
12. fundur
Lögð fram umsókn Veitna um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun á stofnæð hitaveitur hjá Hraunsholti. Sá hluti lagnarinnar sem endurnýja þarf er frá Hraunhólum á móts við hús númer 16 að enda Stekkjarflatar.Hvammur, Garðabær
Í umsókn kemur eftirfarandi fram:
Göngustígur liggur ofan á hitaveitustokk en í honum er lögn sem hefur bilað oft. Til að tryggja öryggi á svæðinu og afhendingu á heitu vatni þarf að leggja nýja lögn við hlið stokksins.
Hitaveitulögnin flytur heitt vatn m.a. á Álftanes og er mikilvæg til að tryggja íbúum nauðsynlega innviði. Ítrekaðar bilanir á þessum legg gera það að verkum að það verður að endurnýja hana til framtíðar. Slík lausn til framtíðar verður þó ekki tilbúin fyrir
komandi vetur og því þarf að setja í forgang að leggja lögn sem mun sinna hlutverkinu næstu árin.
Til að tryggja öryggi vegfarenda verður göngustígnum lokað allan framkvæmdatímann. Þarna verða stórar vinnuvélar á ferð og til að koma í veg fyrir að börn og aðrir gangandi vegfarendur stytti sér leið um framkvæmdasvæðið verður það afgirt. Stóran hluta verktímans verður hægt að þvera göngustíginn þar sem gatnamót hans eru við hraunið.
Verktaki mun hafa afnot af grasbletti við göngustíginn þar sem lagnir og tæki verða geymd.
Loka þarf Garðaflöt við grasblettinn á meðan verktaki kemur lögnum á athafnasvæðið. Það mun taka einn til tvo daga og á meðan verður gangandi umferð beint á götuna framhjá svæðinu. Þá þarf að loka til að tryggja öryggi þeirra. Leitast verður við að hafa lokun sem stysta og utan háannatíma.
Veitur munu ganga frá öllu yfirborði að verki loknu, en vetrarveður getur þó frestað endanlegum frágangi til vors.
Vinnusvæði: Göngustígur í Hvammi á hitaveitustokk frá Hraunhólum að íþróttasvæði Garðabæjar og grasblettur milli Garðaflatar og göngustígs.
Tímaáætlun: Október til loka nóvember 2024.
Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 veitir skipulagsstjóri leyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við framlögð gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II (2.gr.h) við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.