Skerpluholt 5 - Dsk. br. Hnoðraholt norður
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að hæðarkóti einbýlishússins Skerpluholti 5 hækki um 10 cm. Umsögn gatnahönnuðar liggur fyrir. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreint atriði varðar á meðan að heimiluð heildarhæð húss yfir sjávarmáli breytist ekki.
Bæjarráð Garðabæjar
02
42. (2143). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að hæðarkóti einbýlishússins Skerpluholti 5 hækki um 10 cm. Umsögn gatnahönnuðar liggur fyrir.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreint atriði varðar á meðan að heimiluð heildarhæð húss yfir sjávarmáli breytist ekki.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að hæðarkóti einbýlishússins hækki um 10 cm. Umsögn gatnahönnuðar liggur fyrir.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreint atriði varðar á meðan að heimiluð heildarhæð húss yfir sjávarmáli breytist ekki.