Beint í efni

Frjóakur 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2410358

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

10. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (955). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

3. (955). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð baðhúss og skýlis fyrir heitan pott utan byggingarreits að Frjóakri 5. Skipulagsnefnd mat umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir sérstökum byggingarreit fyrir umrætt mannvirki. Nefndin mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 3, 4, 6, 7 og 8 sem og Byggakurs 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og 20.
Samþykkt með 10 atkvæðum. BF vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

05

7. (2155). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð baðhúss og skýlis fyrir heitan pott utan byggingarreits að Frjóakri 5.
Skipulagsnefnd mat umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir sérstökum byggingarreit fyrir umrætt mannvirki. Nefndin mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 3, 4, 6, 7 og 8 sem og Byggakurs 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og 20.
Björg Fenger vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

2. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð baðhúss og skýlis fyrir heitan pott utan byggingarreits að Frjóakri 5.
Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir sérstökum byggingarreit fyrir umrætt mannvirki. Nefndin metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 3, 4, 6, 7 og 8 sem og Byggakurs 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og 20.
Björg Fenger vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

16. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir baðhýsi utan byggingarreits við lóðarmörk að Frjóakri 3 og liggur fyrir samþykki eiganda þeirrar lóðar.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Björg Fenger vék af fundi undir þessum lið.