Dagatal 2025
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
03. fundur
Farið yfir haustdagskrá og hugað að næstu skrefum og áherslum
Farið yfir haustdagskrá og hugað að næstu skrefum og áherslum. Næsti fundur verður tileinkaður þessum áherslum.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
02
01. fundur
Farið yfir sýningar, verkefni og viðburði framundan með tilliti til kostnaðar.
Farið yfir sýningar, verkefni og viðburði framundan með tilliti til kostnaðar.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
03
04. fundur
Dagskrá safnins frá jan - jún 2025 kynnt
Safnið býður upp á áhugaverðar sýningar, fjölskyldusmiðjur, fyrirlestra, leiðsagnir og notalega samveru sem hér segir:
Fjölskyldusmiðjur fyrsta sunnudag í mánuði.
Smiðjurnar eru haldnar í samstarfi við framúrskarandi hönnuði og eru orðnar fastar í sessi. Góð mæting er nú í smiðjurnar eða frá 20 - 100 manns í hverja smiðju.
Næstu smiðjur eru: Piparkökuarkitektúr, óróasmiðja, grafísk sundlaugasmiðja, skartgripasmiðja, hljóðfærasmiðja, leirsmiðja og dúkkulísusmiðja.
Fyrirlestrar/leiðsagnir þriðja sunnudag í mánuði.
Viðburðirnir tengjast sýningum safnsins. Framundan er fyrirlestur Jönu Liebe (verðlaunahafa fyrir fallegustu bók í heimi), fyrirlestur Unndórs Egils Jónssonar sem sýnir húsgögn í safninu, fyrirlestur fiðlusmiðsins Hans Jóhannssonar bæjarlistamanns Garðabæjar og leiðsögn með dansdæmum um föstu sýningu safnsins.
Hádegishittingur með hönnuði þriðja miðvikudag í mánuði
Þessi liður er nýjung og hugsaður fyrir fólk í nágrenni safnsins. Um er ræða notalega samverustund þar sem boðið er upp á kaffi og kleinur, fræðst um eitthvað skemmtilegt og spjallað saman.
Þessir hönnuðir koma í heimsókn: Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sem á verk á sýningunni, Una Marí Magnúsdóttir grafískur hönnuður sem hefur veri að skrá verk Gísla B. Björnssonar, Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður sem á verk á sýningunni og mun einnig tala um föður sinn hönnuðinn Gunnar Magnússon og loks Hringur Hafsteinsson upplifunarhönnuður og stofnandi Gagarín.
Sýningin Fallegasta bók í heimi opnar í janúar, Þórunn Árnadóttir kemur í vinnustofudvöl í janúar, sýningin Barbie fer í Hönnunarsafnið opnar á Safnanótt í febrúar. Á hönnunarMars (sem er í apríl) opna þrjár sýningar: Unndór Egill, sýning á húsgögnum, Brynjar Sigurðarson, sýning á lágmyndum og Þórunn Árnadóttir, vöruhönnuður, verður með uppskeruhátíð eftir 3 mánuði í vinnustofudvöl.
Á Barnamenningarhátíð er boðið upp á smiðju fyrir alla fjórðu bekkinga í Garðabæ. Smiðjan tengist sýningunni, Barbie fer í Hönnunarsafnið. Sett verður upp sýning á verkum nemendanna sem verður hluti af HönnuanrMars. Þriðju bekkingum er einnig boðið í smiðjur í tengslum við Barnamenningarhátíð.
Bókagerðarnámskeið með Jönu Liebe.