04. fundur
04. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
27.11.2024
Kl. 15:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Magnús Kristinn Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2405003HO
01
Safnfræðsla
Í kjölfarið á sérstökum styrk frá Menningarmálaráðuneytinu til þriggja ára hefur verið hægt að efla safnfræðsla svo um munar. Sigríður Sunna Reynisdóttir kom til starfa 1. janúar 2024 til að sinna þessum hluta safnastarfsin. Hún mun kynna starfið sem átt hefur sér stað á árinu í máli, myndum og tölum.
Sigríður Sunna Reynisdóttir kynnir fræðslustarf Hönnunarsafnsins í vetur. Safnið býður grunnskólum nú upp á 3 mismunandi heimsóknir:
1) Heimurinn heima, þar sem hver bekkur innréttar eitt hús saman fyrir ímyndaðan íbúa.
Markmið: kynnast grunnhugtökum innanhússhönnunar, samtal um heimili, vinna í skala, útfæra hugmyndir, skipulag og samstarf, setja sig í spor hönnuða, setja sig í spor notandans, virkja ímyndunaraflið og hugsa með höndunum.
2) Eldblóm - hvernig dans varð að vöruhönnun er einleikur og smiðja.
Kynning á sköpunarferlinu og hvernig frjóar hugmyndir geta hoppað á milli listforma og hönnunargreina, allt frá dansverkum til flugeldasýninga og vöruhönnunar. Áhersla á frumkvöðlahugsun, tilraunagleði og þverfaglegt samstarf.
Markmið: Samtal um skapandi hugsun, hvatning til að framkvæma hugmyndir, Nýsköpun, skali, vöruþróun.
3) Bingó, gripir á sýningu eru notaðir sem innblástur að texta í gegnum leik með bingóspjald.
Markmið: uppgötva hvernig hversdagslegir hlutir geta verið kveikja fyrir ímyndunaraflið, beina athygli að sögu hönnunargripa, auka orðaforða.
Í dag hafa 1477 börn komið í heimsókn og tekið þátt. Við reiknum með að alls verði þetta um 2000 börn á árinu þar sem ekki eru komnar tölur fyrir nóv. og des. en þá var mikið bókað.
Auk nemenda í Garðabæ og á Reykjavíkursvæðinu hafa allir 4. bekkingar á Reykjanesi komið og tekið þátt í verkefninu Eldblóm. Þessar heimsóknir voru styrktar af List fyrir alla. Það er mikill heiður fyrir safnið að komast inn í það prógram. Hönnunarsafnið mun heimsækja skóla á Vestfjörðum með þetta verkefni á næsta ári með styrk frá List fyrir alla.
Verkefnið Heimurinn heima hefur ferðast um skóla á Suðurlandi og alls 160 nemendur tekið þátt. Hluti styrks frá Menningarmálaráðuneytinu á að fara í safnfræðslu úti á landi.
Málsnúmer 2411001HO
02
Dagatal 2025
Dagskrá safnins frá jan - jún 2025 kynnt
Safnið býður upp á áhugaverðar sýningar, fjölskyldusmiðjur, fyrirlestra, leiðsagnir og notalega samveru sem hér segir:
Fjölskyldusmiðjur fyrsta sunnudag í mánuði.
Smiðjurnar eru haldnar í samstarfi við framúrskarandi hönnuði og eru orðnar fastar í sessi. Góð mæting er nú í smiðjurnar eða frá 20 - 100 manns í hverja smiðju.
Næstu smiðjur eru: Piparkökuarkitektúr, óróasmiðja, grafísk sundlaugasmiðja, skartgripasmiðja, hljóðfærasmiðja, leirsmiðja og dúkkulísusmiðja.
Fyrirlestrar/leiðsagnir þriðja sunnudag í mánuði.
Viðburðirnir tengjast sýningum safnsins. Framundan er fyrirlestur Jönu Liebe (verðlaunahafa fyrir fallegustu bók í heimi), fyrirlestur Unndórs Egils Jónssonar sem sýnir húsgögn í safninu, fyrirlestur fiðlusmiðsins Hans Jóhannssonar bæjarlistamanns Garðabæjar og leiðsögn með dansdæmum um föstu sýningu safnsins.
Hádegishittingur með hönnuði þriðja miðvikudag í mánuði
Þessi liður er nýjung og hugsaður fyrir fólk í nágrenni safnsins. Um er ræða notalega samverustund þar sem boðið er upp á kaffi og kleinur, fræðst um eitthvað skemmtilegt og spjallað saman.
Þessir hönnuðir koma í heimsókn: Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sem á verk á sýningunni, Una Marí Magnúsdóttir grafískur hönnuður sem hefur veri að skrá verk Gísla B. Björnssonar, Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður sem á verk á sýningunni og mun einnig tala um föður sinn hönnuðinn Gunnar Magnússon og loks Hringur Hafsteinsson upplifunarhönnuður og stofnandi Gagarín.
Sýningin Fallegasta bók í heimi opnar í janúar, Þórunn Árnadóttir kemur í vinnustofudvöl í janúar, sýningin Barbie fer í Hönnunarsafnið opnar á Safnanótt í febrúar. Á hönnunarMars (sem er í apríl) opna þrjár sýningar: Unndór Egill, sýning á húsgögnum, Brynjar Sigurðarson, sýning á lágmyndum og Þórunn Árnadóttir, vöruhönnuður, verður með uppskeruhátíð eftir 3 mánuði í vinnustofudvöl.
Á Barnamenningarhátíð er boðið upp á smiðju fyrir alla fjórðu bekkinga í Garðabæ. Smiðjan tengist sýningunni, Barbie fer í Hönnunarsafnið. Sett verður upp sýning á verkum nemendanna sem verður hluti af HönnuanrMars. Þriðju bekkingum er einnig boðið í smiðjur í tengslum við Barnamenningarhátíð.
Bókagerðarnámskeið með Jönu Liebe.
Málsnúmer 2405002HO
03
Aðsóknartölur 2024
Farið yfir aðsóknartölur árið 2024
Heildarfjöldi gesta frá janúar - október er 7481.
Þar af eru 1582 sem mættu á sérstaka viðburði á vegum safnsins og 1477 grunnskólabörn sem komu í safnfræðslu.
Málsnúmer 2410003HO
04
Fjárhagsáætlun 2025
Stjórn Hönnunarsafnsins skorar á Menningar- og viðskiptaráðuneyti að endurnýja rekstrarsamning við Hönnunarsafn Ísland og auka hlutfallslegt framlag ríkisins í rekstri með það að leiðarljósi að tryggja safninu stöðugleika og fyrirsjáanleika í rekstri, tryggja öryggi safnkosts og að safnið geti almennt sinnt hlutverki sínu.
Undanfarin sjö ár hafa fulltrúar Garðabæjar átt reglulega fundi við ráðherra og starfsfólk ráðuneytis menningarmála og farið fram á aukið framlag frá ríkinu til reksturs Hönnunarsafns Íslands. Ávallt er tekið vel í erindið og mikil ánægja með starfið í safninu en lítið þokar áfram.
Rekstrarkostnaður var hluti af fjárlögum þangað til fyrir fimm árum, en síðan þá hafa verið gerðir rekstrarsamningar til skemmri tíma og núna er enginn samningur fyrir árið 2025.
Stöðugleiki í rekstri skiptir safnið málið og mikil óvissa fylgir samningum til skemmri tíma. Samningur ætti helst að vera til 5 ára í senn og endurskoðaðir með tilliti til verðhækkana.
Í upprunalegum samningi á milli Menntamálaráðuneytis og Garðabæjar sem tók gildi í janúar 2007 er skipting rekstrarkostnaðar 40% ríkið (9,2m) og 60% Garðabær (14m). Samtals 23,3 m.kr. Árið 2007 var safnið aðeins með lítinn sýningarsal við Garðatorg 7 og afar takmarkaða starfsemi. Árið 2010 flutti safnið að Garðatorgi 1, þá hófst reglubundið sýningarstarf, safnfræðsla og viðburðir. Síðustu árin hefur starfsemi safnsins breyst mikið og árlegur gestafjöldi nánast tvöfaldast frá árinu 2017.
Skipting rekstrarkostnaðar árið 2023 var þannig að framlag Garðabæjar var 66%, framlag samkvæmt rekstrarsamningi ríkisins var 17%, sérstakur samningur við ríkið til 3ja ára vegna safnfræðslu (2023-2025) 8,3%, aðgangseyrir og sala í safnbúð 5,7% og framlag úr safnasjóði sem er samkeppnissjóður á vegum ríkisins 3%. Alls var því framlag ríkisins 28,3% og framlag Garðabæjar 66%. Stöðugleiki og fyrirsjáanleiki er mikilvæg forsenda þess að unnt sé að tryggja áfram vandaða starfsemi safnsins og áframhaldandi vöxt gestafjölda með sérstaka áherslu á miðlun til grunnskólabarna.
Stjórn Hönnunarsafnsins skorar á Menningarmálaráðuneytið að auka framlag ríkisins þannig að hlutfallsleg skipting framlaga ríkis og Garðabæjar verði í sömu hlutföllum og upphaflega, þ.e. ríkið leggi til 40% og Garðabær 60%. Í því felst m.a. að tryggja framlag til safnafræðslu til framtíðar þannig að hún verði hluti af rekstrarsamningi. Ennfremur gera ráð fyrir tilteknu hlutfalli í rekstrarframlagi fyrir uppsetningu á nýjum sýningum til að tryggja endurnýjun í miðlum safnakosts.
Eins og fram kom í bókun fundargerðar stjórnar Hönnunarsafnsins þann 28.05.2024 þá telja stjórn og forstöðumaður safnsins að varðveislurými safnsins sé ekki öruggt til frambúðar. Ráðuneytið er að vinna í þessum málum í samtali við Garðabæ og forstöðumaður safnsins er að taka saman upplýsingar fyrir ráðuneytið svo hægt sé að taka næstu skref.