Beint í efni

Safnfræðsla

Málsnúmer 2405003HO

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

04. fundur

Í kjölfarið á sérstökum styrk frá Menningarmálaráðuneytinu til þriggja ára hefur verið hægt að efla safnfræðsla svo um munar. Sigríður Sunna Reynisdóttir kom til starfa 1. janúar 2024 til að sinna þessum hluta safnastarfsin. Hún mun kynna starfið sem átt hefur sér stað á árinu í máli, myndum og tölum.

Sigríður Sunna Reynisdóttir kynnir fræðslustarf Hönnunarsafnsins í vetur. Safnið býður grunnskólum nú upp á 3 mismunandi heimsóknir:

1) Heimurinn heima, þar sem hver bekkur innréttar eitt hús saman fyrir ímyndaðan íbúa.
Markmið: kynnast grunnhugtökum innanhússhönnunar, samtal um heimili, vinna í skala, útfæra hugmyndir, skipulag og samstarf, setja sig í spor hönnuða, setja sig í spor notandans, virkja ímyndunaraflið og hugsa með höndunum.

2) Eldblóm - hvernig dans varð að vöruhönnun er einleikur og smiðja.
Kynning á sköpunarferlinu og hvernig frjóar hugmyndir geta hoppað á milli listforma og hönnunargreina, allt frá dansverkum til flugeldasýninga og vöruhönnunar. Áhersla á frumkvöðlahugsun, tilraunagleði og þverfaglegt samstarf.
Markmið: Samtal um skapandi hugsun, hvatning til að framkvæma hugmyndir, Nýsköpun, skali, vöruþróun.

3) Bingó, gripir á sýningu eru notaðir sem innblástur að texta í gegnum leik með bingóspjald.
Markmið: uppgötva hvernig hversdagslegir hlutir geta verið kveikja fyrir ímyndunaraflið, beina athygli að sögu hönnunargripa, auka orðaforða.

Í dag hafa 1477 börn komið í heimsókn og tekið þátt. Við reiknum með að alls verði þetta um 2000 börn á árinu þar sem ekki eru komnar tölur fyrir nóv. og des. en þá var mikið bókað.

Auk nemenda í Garðabæ og á Reykjavíkursvæðinu hafa allir 4. bekkingar á Reykjanesi komið og tekið þátt í verkefninu Eldblóm. Þessar heimsóknir voru styrktar af List fyrir alla. Það er mikill heiður fyrir safnið að komast inn í það prógram. Hönnunarsafnið mun heimsækja skóla á Vestfjörðum með þetta verkefni á næsta ári með styrk frá List fyrir alla.

Verkefnið Heimurinn heima hefur ferðast um skóla á Suðurlandi og alls 160 nemendur tekið þátt. Hluti styrks frá Menningarmálaráðuneytinu á að fara í safnfræðslu úti á landi.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

02

02. fundur

Nýr fræðslufulltrúi Sigríður Sunna Reynisdóttir kynnir fræðslustarf safnsins frá áramótum og það sem er framundan.

Sigríður Sunna Reynisdóttir hefur verið ráðin í 50% starf hjá safninu sem sérfræðingur í fræðslu. Starfið kemur til vegna styrks til þriggja ára frá Menningar- og viðskipta ráðuneytinu. Sigríður hefur starfað sem leikmynda- leikbrúðu- og búningahönnuður og er stofnandi og listrænn stjórnandi
Þykjó sem hefur sérhæft sig í þverfaglegum hönnunarverkefnum fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Hópurinn vinnur náið með lista- vísinda- og fræðasamfélaginu og hefur hannað og framkvæmt fjölbreyttar smiðjur, innsetningar og viðburði í samstarfi við söfn og menningarstofnanir.

Sigríður sér um að þróa smiðjur fyrir grunnskola í samtali við safnstjóra, sérfræðing safneignar og sýningarstjóra sem eru að vinna með safninu hverju sinni. Hún finnur hönnuði eða aðra til að vinna með eftir því sem við á. Sigríður sér um að kynna þetta starf og bóka skólahópa og stýrir smiðjunum. Hún tekur einnig á móti nemendum úr framhaldsskólum og háskólum.
Hún sér um að setja upp sýningar tengdar smiðjunum á Barnamenningarhátíð, námskeið í sumar og vetrarfríum auk þess að sjá um vandaðar fjölskyldsmiðjur á sunnudögum einu sinni í mánuði.

Fyrsta fræðsluverkefnið sem Sigríður þróaði í safninu fyrir grunnskólanemendur er „Hvernig dans varð vöruhönnun“. Það var þróað í tengslum við samnefnda rannsóknardvöl Sigríðar Soffíu Níelsdóttur. Sigríður Soffía tekur á móti nemendunum með skemmtilegum einleik um skapandi ferli og í framhaldinu fara nemendurnir í smiðju með Sigríði Sunnu þar sem þau fá að "hugsa með höndunum".

Markmiðið er að opna augu barna fyrir því hvernig frjóar hugmyndir geta hoppað á milli listforma og hönnunargreina, allt frá dansverkum til flugeldasýninga og vöruhönnunar.

Markmið heimsóknar:

Kynna hönnun sem hugtak

Efla meðvitund um íslenska hönnunarsögu

Opna glugga inn í heim vöruhönnunar

Kynna frumkvöðlahugsun og tilraunir

Störf framtíðar - þverfaglegt samstarf

Upplifun fyrir öll skilningarvit

Hvetja til sjálfbærni og garðræktar

Samanburður á skala (1:1 og 1:300)

Kveikja forvitni fyrir náttúrunni

Ögra hugmyndum um safnaheimsókn

Verkefnið var meðal annars sýnt á Barnamenningarhátíð Garðabæjar.

Samtals hefur verið tekið á móti 563 nemendur og 66 kennurum frá 14 skólum í tengslum við verkefnið.

Boðið verður áfram upp á heimsóknina í haust auk þess sem hún verður þróuð fyrir skóla úti á landi en það er partur af samkomulagi við ráðuneytið.

Sigríður Sunna sér einnig um fjölbreyttar fjölskyldusmiðjur fyrsta sunnudag í hverjum mánuði í samstarfi við valda hönnuði. Meðal þess sem boðið hefur verið uppá frá áramótum eru: skartgripasmiðja, flugdrekasmiðja og textílþrykk. Smiðjurnar hafa nú fest sig í sessi og eru vel sóttar.

Einnig var boðið upp á útsaumsnámskeið fyrir fullorðna í samstarfi við argentínska hönnuðinn Adriönu Torres. Slík námskeið eru seld í gegnum tix.is