Beint í efni

Íþróttafólk ársins 2024 - Íþróttahátíð Garðabæjar jan 25

Málsnúmer 2411151

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

34. fundur

Farið yfir tilnefningar sem borist hafa.
ÍTG velur 5 karla og 5 konur til að taka þátt í loka vali á íþróttafólki ársins í Garðabæ.

ÍTG tók við ábendingum og umsögnum um íþróttafólk Garðabæjar 2024 frá íþróttafélögum og almenningi. Ákveðið var að tilnefna 5 karla og 5 konur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar þetta árið.
Karlar:
Aron Snær Júlíusson GKG golf
Friðbjörn Bragi Hlynsson Stjarnan kraftlyftingar
Valgarð Reinhardsson Gerpla áhaldafimleikar
Ægir Þór Steinarsson Stjarnan körfubolti
Nikita Bazev DÍH Latín dansar
Konur:
Ásta Kristinsdóttir Stjarnan hópfimleikar
Hanna Jóna Sigurjónsdóttir Stjarnan kraftlyftingar
Hulda Clara Gestsdóttir GKG golf
Ingeborg Eide Garðarsdóttir Ármann frjálsar Parasport
Hanna Rún Bazev Óladóttir DÍH Latín dansar
Kynning á íþróttafólkinu verður birt á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum.
Íbúum er gefinn kostur á að taka þátt í vefkosningu sem verður opin frá 20. des til 3. janúar 2025. Íþróttahátíð Garðabæjar þar sem kjörinu verður lýst verður haldin í Miðgarði sunnudaginn 12. janúar 2025 kl. 13:00

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

33. fundur

Til umræðu er fyrirkomulag Íþróttahátíðar Garðabæjar 12. janúar 2025 vegna kjörs íþróttafólks ársins í Garðabæ 2024.

Dagskrá og fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar sem fyrirhugað er að halda 12. janúar 2025 var rætt. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa var falið að vinna áfram að undirbúningi og senda út bréf til frjálsra félaga í bænum þar sem óskað er eftir tilnefningum til íþróttafólks Garðabæjar 2024. Tilnefningar verða teknar fyrir á næsta fundi ÍTG 11. Desember nk.