34. fundur
34. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
11.12.2024
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2411151
01
Íþróttafólk ársins 2024 - Íþróttahátíð Garðabæjar jan 25
Farið yfir tilnefningar sem borist hafa.
ÍTG velur 5 karla og 5 konur til að taka þátt í loka vali á íþróttafólki ársins í Garðabæ.
ÍTG tók við ábendingum og umsögnum um íþróttafólk Garðabæjar 2024 frá íþróttafélögum og almenningi. Ákveðið var að tilnefna 5 karla og 5 konur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar þetta árið.
Karlar:
Aron Snær Júlíusson GKG golf
Friðbjörn Bragi Hlynsson Stjarnan kraftlyftingar
Valgarð Reinhardsson Gerpla áhaldafimleikar
Ægir Þór Steinarsson Stjarnan körfubolti
Nikita Bazev DÍH Latín dansar
Konur:
Ásta Kristinsdóttir Stjarnan hópfimleikar
Hanna Jóna Sigurjónsdóttir Stjarnan kraftlyftingar
Hulda Clara Gestsdóttir GKG golf
Ingeborg Eide Garðarsdóttir Ármann frjálsar Parasport
Hanna Rún Bazev Óladóttir DÍH Latín dansar
Kynning á íþróttafólkinu verður birt á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum.
Íbúum er gefinn kostur á að taka þátt í vefkosningu sem verður opin frá 20. des til 3. janúar 2025. Íþróttahátíð Garðabæjar þar sem kjörinu verður lýst verður haldin í Miðgarði sunnudaginn 12. janúar 2025 kl. 13:00
Málsnúmer 2402393
02
Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Garðabæjar
Pílufélag Garðabæjar hefur formlega verið stofnað og tekið inn í UMSK. Félagið óskar eftir æfingaaðstöðu í Miðgarði.
ÍTG fagnar starfi Pílufélags Garðabæjar og inntöku þess í UMSK.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa er falið að úthluta þeim æfingaaðstöðu við hæfi.
Málsnúmer 2411260
03
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um ferðastyrk kr. 20.000 til Ásmundar Óskars Ásmundssonar vegna EM blandaðra liða í hópfimleikum í Baku, Azerbaijan 13. október 2024
ÍTG samþykkir að veita ferðastyrk kr. 20.000 til Ásmundar Óskars Ásmundssonar vegna EM blandaðra liða í hópfimleikum í Baku, Azerbaijan 13. október 2024.