Beint í efni

Ósk um aðstöðu/styrk fyrir Pílufélag Garðabæjar

Málsnúmer 2402393

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

37. fundur

Til að mæta útgjöldum vegna nauðsynlegrar stækkunar aðstöðunnar óskar stjórnin eftir styrk að fjárhæð 1 mkr. til kaupa á búnaði fyrir hina nýju bása ss. spjöldum, ljósum fyrir spjöldin og spjaldtölvum. Styrkurinn yrði einnig notaður til að koma upp einum sérsmíðuðum bás sem hentar þeim sem eru bundnir við hjólastól

ÍTG samþykkir að styrkja Pílufélag Garðabæjar til aðstöðusköpunar í Miðgarði um kr. 750.000,- með sérstakri áherslu á að tryggja aðstöðu fólks með mismunandi fatlanir svo sem vegna hjólastóla. ÍTG leggur áherslu á að Pílufélagið skapi góða íþrótta-umgjörð sem þjóni markmiðum í lýðheilsu- og forvarnastefnu bæjarins.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

34. fundur

Pílufélag Garðabæjar hefur formlega verið stofnað og tekið inn í UMSK. Félagið óskar eftir æfingaaðstöðu í Miðgarði.

ÍTG fagnar starfi Pílufélags Garðabæjar og inntöku þess í UMSK.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa er falið að úthluta þeim æfingaaðstöðu við hæfi.