Beint í efni

Hönnunarsafn Íslands - samningsdrög

Málsnúmer 2412204

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (955). fundur

Lagður fram til afgreiðslu samningur menningar- og viðskiptaráðuneytis við Garðabæ um ráðstöfun styrktar-/rekstrarframlags vegna starfsemi Hönnunarsafn Íslands 2025.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir samningnum og lagði til að samningurinn verði samþykktur. Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun: „Hlutfallslegt framlag Garðabæjar hefur aukist verulega frá stofnun safnsins. Á yfirstandandi ári nema áætluð framlög Garðabæjar til safnsins um 72 m.kr. Fyrir liggur hagræðingarkrafa af hálfu Garðabæjar vegna reksturs safnsins upp á 10mkr.

Í ljósi þessarar stöðu er nauðsynlegt að langvarandi viðræður við menningar- og viðskiptaráðuneytið um málefni safnsins verði endanlega leiddar til lykta á árinu, með samningum til lengri tíma um rekstrarfyrirkomulag og húsnæðismál safnsins.

Fram kemur í viðauka við samninginn að aðilar skuldbindi sig til að setja af stað vinnu vegna framtíðarskipunar málefna safnsins og skal að því stefnt að þeim verði lokið eigi síðar en 30. júní 2025.“

Bókun bæjarstjóra samþykkt samhljóða. Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um starfsemi Hönnunarsafns Íslands. Samningurinn gildir til 31. desember 2025.

Bæjarráð Garðabæjar

02

7. (2155). fundur

Lögð fram drög að samningi menningar- og viðskiptaráðuneytisins og Garðabæjar um rekstrarstyrk til Hönnunarsafns Íslands 2025.

Bæjarráð ítrekar þau sjónarmið Garðabæjar sem fram komu í erindi bæjarins til ráðuneytisins 23. september 2023, að nauðsynlegt sé að langvarandi viðræður milli samningsaðila verði til lykta leiddar með samningum til lengri tíma um rekstrarfyrirkomulag og húsnæðismál safnsins. Fyrir liggur að áætluð fjárframlög Garðabæjar til reksturs safnsins lækka á árinu og því óhjákvæmilegt að leitað sé annarra leiða um fjárframlög til rekstursins. Samningsaðilar skuldbinda sig til að setja af stað vinnu vegna framtíðarskipunar málefna Hönnunarsafnsins og skal stefnt að því að þeim verði lokið eigi síðar en 30. júní 2025. Framangreind sjónarmið liggja fyrir í viðauka við samninginn.

Bæjarráð vísar drögum að samningi við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

47. (2148). fundur

Drög að samningi rædd. Málinu frestað.