Beint í efni

Ályktun FÍÆT um áfengissölu á íþróttaviðburðum

Málsnúmer 2501248

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

37. fundur

Borist hefur ályktun frá Félagi íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa sveitarfélaga um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum:
"Félag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi (FÍÆT) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á Íslandi. Íþróttastarf á Íslandi er mikilvægur og öflugur vettvangur heilsueflingar, forvarna og félagslegs þroska, sérstaklega meðal barna og ungmenna.
FÍÆT telur að sala á áfengi á íþróttaviðburðum gangi þvert gegn tilgangi íþrótta og sendi röng skilaboð um tilgang íþróttastarfseminnar, sérstaklega til barna og ungmenna."

Ályktun frá Félagi íþrótta-, æskulýðs og tómstundafulltrúa sveitarfélaga um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum lögð fram og kynnt. Í ályktuninni lýsir félagið yfir áhyggjum vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á Íslandi. Íþrótta- og tómstundaráð beinir því til félaga í Garðabæ að huga að þessum málum, virða reglur bæjarins um áfengi í íþróttamannvirkjum, gæta að öryggi barna og ungmenna og standa vörð um forvarnargildi íþróttahreyfingarinnar. Engar áfengsveitingar eru leyfilegar í íþróttamannvirkjum eða á áhorfendasvæðum í eigu Garðabæjar, nema í afmörkuðum rýmum samkvæmt tilskildum leyfum. Ráðið hvetur til upplýstrar og ábyrgrar umræðu um áfengismál í samfélaginu.
ÍTG tekur undir með FÍÆT varðandi mikilvægi íþróttastarfs á Íslandi og þeim öfluga vettvangi sem það er til heilsueflingar, forvarna og félagslegs þroska, sérstaklega meðal barna og ungmenna.