Beint í efni

Hafnarfjörður - Ask.br. AT1 - Umsagnarbeiðni

Málsnúmer 2502106

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (957). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem gerir ráð fyrir landnotkunarreit fyrir íbúðarbyggð sem gerir ráð fyrir 6 smáhýsum sem eru ætluð einstaklingum sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Reiturinn er á núverandi athafnasvæði við sveitarfélagsmörk að Garðabæ, rétt austan við Fjarðarkaup. Skipulagsnefnd Garðabæjar sýnir því skilning að finna þurfi viðeigandi stað fyrir úrræði sem tillagan gerir ráð fyrir. Hér er lögð til staðsetning sem er fjarri íbúðarbyggð í Hafnarfirði en nefndin bendir á að íbúðarbyggð Garðabæjarmegin er innan seilingar. Nefndin tekur undir umsögn Vegagerðarinnar um fyrirhugaðan Álftanesveg en staðsetningin sem tillagan gerir ráð fyrir liggur að vegstæði hans. Skipulagnefnd telur því staðsetninguna óheppilega.

Bæjarráð Garðabæjar

02

11. (2159). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem gerir ráð fyrir landnotkunarreit fyrir íbúðarbyggð sem gerir ráð fyrir 6 smáhýsum sem eru ætluð einstaklingum sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Reiturinn er á núverandi athafnasvæði við sveitarfélagsmörk að Garðabæ, rétt austan við Fjarðarkaup.
Skipulagsnefnd Garðabæjar sýnir því skilning að finna þurfi viðeigandi stað fyrir úrræði sem tillagan gerir ráð fyrir. Hér er lögð til staðsetning sem er fjarri íbúðarbyggð í Hafnarfirði en nefndin bendir á að íbúðarbyggð Garðabæjarmegin er innan seilingar. Nefndin tekur undir umsögn Vegagerðarinnar um fyrirhugaðan Álftanesveg en staðsetningin sem tillagan gerir ráð fyrir liggur að vegstæði hans.
Skipulagnefnd telur því staðsetninguna óheppilega.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem gerir ráð fyrir landnotkunarreit fyrir íbúðarbyggð sem gerir ráð fyrir 6 smáhýsum sem eru ætluð einstaklingum sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Reiturinn er á núverandi athafnasvæði við sveitarfélagsmörk að Garðabæ, rétt austan við Fjarðarkaup.
Skipulagsnefnd Garðabæjar sýnir því skilning að finna þurfi viðeigandi stað fyrir úrræði sem tillagan gerir ráð fyrir. Hér er lögð til staðsetning sem er fjarri íbúðarbyggð í Hafnarfirði en nefndin bendir á að íbúðarbyggð Garðabæjarmegin er innan seilingar. Nefndin tekur undir umsögn Vegagerðarinnar um fyrirhugaðan Álftanesveg en staðsetningin sem tillagan gerir ráð fyrir liggur að vegstæði hans.
Skipulagnefnd telur því staðsetninguna óheppilega.
Sigþrúður Ármann vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð Garðabæjar

04

7. (2155). fundur

Umsagnarbeiðni Hafnarfjarðar vegna breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar, varðandi breytingu á landnotkun AT1 reits við Hólshraun. Reiturinn er nú athafnasvæði en í tillögunni er hluta hans breytt í íbúðarsvæði.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar í skipulagsnefnd.