Vorbraut 21 - Umsókn um byggingarleyfi -
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
22. (2170). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut 21-25 ehf., kt. 580324-1850 leyfi fyrir byggingu raðhúss að Vorbraut 21.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
4. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir raðhúslengunar Vorbraut 21-27 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Gólfkótar víkja lítillega frá kótum á hæðablaði en heildarhæð húss er vel innan marka ákvæða deiliskipulags sem er 8 m frá gólfkóta neðri hæðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrættina hvað deiliskipulag varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu gólfhæðar og að við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað gólfkóta sem gefnir eru upp á hæðablaði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.