Beint í efni

Sviðholtsvör 9 - Deiliskipulags breyting

Málsnúmer 2503182

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

4. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Vara á Álftanesi. Breytingin gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar um 30 m² í suðausturhorni lóðar, sem nær að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á á deiliskipulagi Vara á Álftanesi í samræmi við 2. mgr. 43. gr skipulagslaga og vísar henni í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Sviðholtsvarar 3, 5 og 7 sem og Efstakot 2 og 4.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.