Beint í efni

Ráðning forstöðumanna íþróttamannvirkja í Ásgarði og á Álftanesi

Málsnúmer 2503276

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

37. fundur

Ráðningar forstöðumanna í Ásgarð og Breiðumýri
Kristján Hilmarsson hættir 31. mars nk. eftir 21 ár í starfi hjá Garðabæ. Hann hefur undanfarin 5 ár verið forstöðumaður í Ásgarði, Breiðumýri á Álftanesi, íþrh. Sjálandsskóla og í Mýrinni.
Íris Svavarsdóttir hefur verið ráðin í Ásgarð og hóf hún störf 12. mars sl.
Ólafur Ólafsson hefur verið ráðinn við íþróttamiðstöðina Breiðumýri og hefur störf þar 15. maí nk.

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi sagði frá ráðningu forstöðumanna í Ásgarð og Breiðumýri á Álftanesi. Kristján Hilmarsson hættir 31. mars nk. eftir 22 ár í starfi hjá Garðabæ. Hann hefur undanfarin 5 ár verið forstöðumaður í Ásgarði, Breiðumýri á Álftanesi, íþrh. Sjálandsskóla og í Mýrinni. ÍTG þakkar Kristjáni vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar.
Íris Svavarsdóttir íþróttafræðingur hefur verið ráðin í Ásgarð og hóf hún störf 12. mars sl. Íris er upp alin í fimleikadeild Stjörnunnar, hefur starfað við verkefnastjórnun hjá FSÍ og kópavogsbæ auk kennslu og þjálfunar.
Ólafur Ólafsson hefur verið ráðinn við íþróttamiðstöðina Breiðumýri á Álftanesi og hefur störf þar 15. maí nk. Hann er íþróttakennari og íþróttafræðingur að mennt og er starfandi íþrótta- og tómstundafulltrúi á Grundarfirði, var áður íþróttastjóri hjá Víkingi í Rvk. Hann hefur verið íþróttakennari og knattspyrnuþjálfari.
ÍTG býður þau Írisi og Ólaf velkomin til starfa.