Beint í efni

Breiðamýri - Deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2505074

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir aðkomu og bílastæðum norðan við Lambamýri 1 til þess að bæta aðgengi að fyrirhuguðum fjölnota sal á jarðhæð. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. (959). fundur


Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aðkomu og bílastæðum norðan við Lambamýri 1 til þess að bæta aðgengi að fyrirhuguðum fjölnota sal á jarðhæð. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum eigna við Lambamýri.

Bæjarráð Garðabæjar

04

18. (2166). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aðkomu og bílastæðum norðan við Lambamýri 1 til þess að bæta aðgengi að fyrirhuguðum fjölnota sal á jarðhæð.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum eigna við Lambamýri.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

8. fundur

Lög fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aðkomu og bílastæðum norðan við Lambamýri 1 til þess að bæta aðgengi að fyrirhuguðum fjölnota sal á jarðhæð.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum eigna við Lambamýri.