Afmælismerki 50 ára afmælis Garðabæjar 2026
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (970). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að haldinn verði aukafundur bæjarstjórnar Garðabæjar þriðjudaginn 6. janúar 2026, sbr. 2. og 3.mgr. 8.gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar. Sá fundur yrði hátíðarfundur bæjarstjórnar í tilefni afmælisársins. Dagsetningin er valin m.t.t. þess að fyrsti fundur bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn þann 6. janúar 1976. Bæjarráð felur bæjarstjóra í samvinnu við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og þjónustu- og þróunarsviðs að undirbúa fundinn og dagskrá hans.
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. (2193). fundur
Samskiptastjóri kynnti afmælismerki Garðabæjar í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar árið 2026 kynnt. Útfærsla afmælismerkisins er hönnuð af Einari Guðmundssyni grafískum hönnuði.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Ágúst Þór Guðmundsson (sviðstjóra þróunar- og þjónustu) sem formann, Árna Jón Eggertsson (verkefnastjóra í stafrænni þróun), Egil Daða Gíslason (deildarstjóra umhverfis og framkvæmda), Guðnýju Hrönn Antonsdóttur (samskipta- og kynningarfulltrúa), Gunnar Hrafn Gunnarsson (verkefnastjóra tækni- og tómstundamála) og Ólöfu Breiðfjörð (menningarfulltrúa) í framkvæmdaráð fyrir viðburði 50 ára afmælisárs Garðabæjar 2026.
Framkvæmdaráðinu er falið að útfæra nánar dagskrá afmælisins og hafa umsjón með framkvæmd einstakra dagskrárliða. Framkvæmdaráði er falið að meta hvort þörf sé á að ráða verkefnastjóra í hlutastarf til útfærslu einstakra viðburða á afmælisárinu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að haldinn verði aukafundur bæjarstjórnar Garðabæjar þriðjudaginn 6. janúar 2026, sbr. 2. og 3.mgr. 8.gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar. Sá fundur yrði hátíðarfundur bæjarstjórnar í tilefni afmælisársins. Dagsetningin er valin m.t.t. þess að fyrsti fundur bæjarstjórnar Garðbæjar var haldinn þann 6. janúar 1976.
Bæjarráð felur bæjarstjóra í samvinnu við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og þjónustu- og þróunarsviðs að undirbúa fundinn og dagskrá hans.