Öryggismyndavélar í Garðabæ.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
7. (2202). fundur
Sviðstjóri þjónustu- og þróunarsviðs kynnti notkun öryggismyndavéla í Garðabæ. Myndavélum hefur verið komið fyrir við undirgöng í bænum, sem var verkefni unnið í samráði við lögregluna. Undanfarið hefur myndavélum fjölgað um þrjár við undirgöng auk þriggja löggæslumyndavéla. Nú stendur yfir samráð við lögreglu um fyrirkomulag og staðsetningu fleiri öryggismyndavélar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. (2193). fundur
Sviðstjóri þjónustu- og þróunarsviðs og Skarphéðinn Bergmann Jónsson sérfræðingur á upplýsingatæknideild kynntu notkun öryggismyndavéla í Garðabæ.
Helstu verkefni sem lúta að öryggismyndavélum og eru á döfinni hjá Garðabæ varða vöktun í og við undirgöng í bænum, sem er verkefni sem unnið er í samráði við lögregluna. Þá er í vinnslu uppsetning öryggismyndavéla inni á göngugötu Garðatorgs. Loks er til skoðunar að fjölga öryggismyndavélum við grenndarstöðvar í Garðabæ, en noktun myndavélanna á grenndarstöðvum hefur gefið góða raun.