Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps, dags. 04.02.26.
Málsnúmer 2602079
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
5. (2200). fundur
Lögð fram skýrsla forsætisráðuneytisins vegna brúunar umönnunarbilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSH frá fundi stjórnarinnar 2. febrúar sl. um mikilvægi þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu kölluð að borðinu við vinnuna og að tillögur skýrslunnar séu skoðaðar og ígrundaðar vel, en samkvæmt skýrslunni er mjög skammur tími ætlaður til undirbúnings og viðræðna vegna þeirra. Bæjarráð vísar málinu til skoðunar á fræðslu- og frístundasviði.