Erindi til leik- og grunnskólanefnda frá Hjallastefnunni
Málsnúmer 2603024
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
39. fundur
Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar óskar eftir að færa einn af skipulagsdögum haustsins á skóladagatali skólaársins 2026-2027, það er skipulagsdaginn 21. september verði færður til 9. október 2026, vegna sameiginlegs starfsdags Hjallastefnunnar. Skólanefnd bókar að Garðabær hefur samþykkt skóladagatöl tvö ár fram í tímann. Skólanefnd samþykkir erindið enda tryggi skólinn opnun frístundaheimilisins og þjónustu fyrir þá nemendur sem á því þurfa að halda. Skólanefnd leggur áherslu að skipulagsdagar falli að sameiginlegu skóladagatali í leik- og grunnskólum Garðabæjar.