Beint í efni

Bókun frá 624. fundi stjórnar SSH - Þjónustusamningur sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsv. ohf. og samstarfssamningur Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsv. ohf.

Málsnúmer 2603077

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (976). fundur

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi þjónustusamning sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. og samstarfssamning Strætó bs. og Almenningssamgangna ohf. og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samningana fyrir hönd Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

9. (2204). fundur

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna þjónustusamnings sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. og samstarfssamning Strætó bs. og Almenningssamgangna ohf. Jafnframt eru lögð fram lokadrög framangreindra samninga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi þjónustusamning og samstarfssamning og fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samningana fyrir hönd Garðabæjar.