Fundargerð bæjarráðs frá 5/5 ´26.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (978). fundur
Björg Fenger ræddi 5.tl. Vífilsstaðir, deiliskipulag 1. áfangi og 6.tl. Garðahverfi - tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 5.tl. Vífilsstaðir, deiliskipulag 1. áfangi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 6.tl. Garðahverfi - tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita. Hún áréttaði bókun Baldurs Ó. Svavarssonar frá fundi skipulagsnefndar 30. apríl 2026 um málið. Þá ræddi hún 12.tl. niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ 2026 og 13.tl. minnisblað um samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 12.tl. niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ 2026, 14.tl. sumarstörf í Garðabæ 2026 og 5.tl. Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1. áfangi og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ fagnar því að nú hefst samtal við íbúa Garðabæjar og annað áhugafólk um uppbyggingu Vífilsstaða. Viðreisn hvetur til þess að sem flestum þeim sem hafi athugasemdir eða hugmyndir sendi þær inn til vinnslu hjá skipulagsyfirvöldum bæjarins. Uppbygging mun heppnast vel í góðu samtali.
Það þarf að tryggja að við uppbyggingu á Vífilsstöðum verði skapað rými til þess að menning og viðburðir geti blómstrað, tekið á sig mynd og verið hluti af brag hverfisins. Það er mikilvægt að þessi uppbygging taki mið af því að það sé hægt að standa að viðburðum án mikils tilstands eða tilkostnaðar.
Til hamingju Garðabær með þennan áfanga. Nú hefjum við samtalið um þetta þekkta og merkilega kennileiti bæjarins."
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 6.tl. Garðahverfi - tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita og áréttaði bókun meirihluta skipulagsnefndar frá fundi nefndarinnar 30. apríl 2026. Þá ræddi hún 12.tl. niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ 2026.
Almar Guðmundsson ræddi 5.tl. Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1. áfangi, 9.tl. endurnýjun gatna og lagna í Garðabæ, 12.tl. niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ 2026 og 14.tl. sumarstörf í Garðabæ 2026.
Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2512147. Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1. áfangi.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða sem unnin hafa verið af arkitektastofunni Gláma/Kím í samstarfi við umhverfissvið. Svæðið sem tillagan nær til er um 2 hektarar að stærð og afmarkast af Spítalavegi til vesturs og suðurs, Vífilsstaðavegi til norðurs og Ungmennafélagsgarði til austurs. Innan skipulagssvæðisins standa gamla fjósið, vélageymsluhús, Búshúsið og starfsmannabústaður austan þess. Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir atvinnuhúsnæði (skrifstofuhúsnæði), sem yrði samanlagt um 6000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir 10 nýbyggingum í tveimur samstæðum. Auk þess yrðu fjósið, vélageymsluhúsið og Búshúsið nýtt sem atvinnu- eða þjónustuhúsnæði og þau gerð upp með tilhlýðilegri virðingu. Leitast er við að nýjar byggingar falli sem best að anda staðar og þeim mikilvæga byggingararfi sem fyrirfinnst á Vífilsstöðum. Það á við um stærðir bygginga, þakform, byggðamynstur og yfirbragð. Horft er til þess að rýmið (torgið) norðan Vífilsstaðaspítala haldi sér þó hluti þess sé utan þess svæðis sem deiliskipulagsáfanginn nær til. Aðkoma verður frá tveimur hringtorgum á Vífilsstaðavegi og verður aðalaðkoma frá hringtorginu næst Reykjanesbraut. Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar (kynningar á vinnslustigi) í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
2010078. Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti: Almennar breytingar: - Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu. - Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum. - Nýjar lóðir verða um 900 m² að stærð, staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs við ábúendur eða vegna fornminja. - Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt. Stígar og aðgengi: - Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði. - Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju. - Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag. - Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi. - Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn. Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur: - Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll. - Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð. - Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað. - Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð: - Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum. - Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m² í stað 80 m². - Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl. - Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins. - Kvöðum um fornleifar er breytt. - Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti. - Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti. Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni: - Ein íbúðarhúslóð verði bætt við norðan Pálshúsa, Pálshús 4. - Landi Nýjabæjar 2 verði skipt upp í tvær íbúðarhúsalóðir, Nýjabæ 2a (núverandi hús) og Nýjabæ 2b (nýtt hús) - Lögun lóðar umhverfis Grjóta (Hausastaðakot) verði breytt. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis og var samþykkt á síðasta fundi nefndarinnar. Voru tillögurnar auglýstar samhliða en hvorki athugasemdir né umsagnir gáfu tilefni til breytingar á aðalskipulagstillögunni. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem fram kemur innihald þeirra athugasemda og tillaga að svörum Garðabæjar við þeim.