Beint í efni

Stígar - framkvæmdarleyfi - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2605366

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

9. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

8. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gerðar göngu- og hjólastígs vestan Hafnarfjarðarvegar sem nær frá Lyngás að Álftanesvegi. Lega stígs er í samræmi við gildandi aðalskipulag. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn. Um ákvörðun skipulagsstjóra víasast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Samhliða er lögð fram embættisafgreiðsla skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar vegna umsóknar Betri Samgangna um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin felur í sér að útbúa aðskildan hjóla- og göngustíg að sveitarfélagamörkum Garðabæjar (Súlunes - Kópavogsdalur).
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu framvæmdarleyfis að undangenginni grenndarkynningu fyrir lóðarhafa Súluness 24, 25, 26, 27 og 33.