Úthlutunarteymi félagslegs leiguhúsnæðis
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
7. fundur
Lögð er fram tillaga um skipun úthlutunarteymis félagslegs leiguhúsnæðis sem nefnt er í 9. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði nr. 962/2025.
Velferðarráð samþykkir skipun úthlutunarteymis félagslegs leiguhúsnæðis. Í teyminu sitja deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu, deildarstjóri barnaverndar, verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks, félagsráðgjafi félagsþjónustu og lögfræðingur velferðarsviðs. Teymið starfar samkvæmt gildandi reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis. Séu atkvæði við úthlutun jöfn ræður sviðsstjóri úrslitum.
Verði forföll í teyminu skipar sviðsstjóri velferðarsviðs varamann í samráði við þann sem forfallast.
Úthlutunarteyminu er heimilt að kalla aðra starfsmenn velferðarsviðs til setu á úthlutunarfundum, hafi þeir innsýn í tiltekin mál og geti veitt teyminu ráðgjöf við afgreiðslu þeirra. Þeir starfsmenn hafa þó ekki atkvæðisrétt við úthlutun.
Velferðarráð óskar eftir að fá a.m.k. tvisvar á ári ópersónugreinanlegt yfirlit um stöðu biðlista, fjölda umsókna og úthlutana og biðtíma eftir félagslegu húsnæði, þannig að ráðið geti fylgst með því hvort framboð húsnæðis mæti raunverulegri þörf.