7. fundur
7. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.08.2026
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Anna Ragnheiður Möller - formaður
- Ýmir Örn Finnbogason - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Haukur Þorsteinsson - aðalmaður
- Inga Amal Hasan - aðalmaður
- Harpa Grétarsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030
Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 lögð fram til kynningar.
Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 lögð fram til kynningar. Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins kynnir og svarar fyrirspurnum fundarmanna.
Velferðarráð fagnar aðgerðaráætluninni og óskar eftir að fá með reglubundnum hætti upplýsingar um stöðu innleiðingar farsældarlaga í Garðabæ. Óskað er eftir kynningu á stöðunni frá verkefnastjóra innleiðingar farsældar á næstu mánuðum.
02
Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri
Skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar um Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri lögð fram til kynningar.
Skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar um Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri lögð fram til kynningar. Anna Eygló Karlsdóttir deildarstjóri barnaverndarþjónustu Garðabæjar sat fundinn undir þessum lið, fór yfir hvernig niðurstöður skýrslunnar eiga við um starfsemi barnaverndarþjónustu Garðabæjar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Barnaverndarþjónusta Garðabæjar mun vinna áætlun um úrbætur samkvæmt tilmælum skýrslunnar sem verður lögð fyrir velferðarráð um næstu áramót.
03
Úthlutunarteymi félagslegs leiguhúsnæðis
Lögð er fram tillaga um skipun úthlutunarteymis félagslegs leiguhúsnæðis sem nefnt er í 9. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði nr. 962/2025.
Velferðarráð samþykkir skipun úthlutunarteymis félagslegs leiguhúsnæðis. Í teyminu sitja deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu, deildarstjóri barnaverndar, verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks, félagsráðgjafi félagsþjónustu og lögfræðingur velferðarsviðs. Teymið starfar samkvæmt gildandi reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis. Séu atkvæði við úthlutun jöfn ræður sviðsstjóri úrslitum.
Verði forföll í teyminu skipar sviðsstjóri velferðarsviðs varamann í samráði við þann sem forfallast.
Úthlutunarteyminu er heimilt að kalla aðra starfsmenn velferðarsviðs til setu á úthlutunarfundum, hafi þeir innsýn í tiltekin mál og geti veitt teyminu ráðgjöf við afgreiðslu þeirra. Þeir starfsmenn hafa þó ekki atkvæðisrétt við úthlutun.
Velferðarráð óskar eftir að fá a.m.k. tvisvar á ári ópersónugreinanlegt yfirlit um stöðu biðlista, fjölda umsókna og úthlutana og biðtíma eftir félagslegu húsnæði, þannig að ráðið geti fylgst með því hvort framboð húsnæðis mæti raunverulegri þörf.
04
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð frá janúar - júlí 2026 lagðar fram til umræðu og kynningar.
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð frá janúar til júní 2026 lagðar fram til umræðu og kynningar.