15. fundur
15. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.10.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Inga Amal Hasan - varamaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Tillag að Aðalskipulag Garðabæjar 2016 til 2030 ásamt umhverfismatsskýrslu lögð fram að loknu stefnumótunarferli. Skipulagsnefnd samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að tillögunni verði vísað til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr. Skipulagslaga.
Forkynningin skal standa a.m.k. 4 vikur frá auglýsingu forkynningar sem verður með áberandi hætti.
Tillagan skal kynnt umsagnaraðilium, sveitarstjórnum Hafnarfjarðar, Kópavogs og Reykjavíkur sem og svæðisskipulagsnefnd. TIllagan skal liggja frammi í þjónustuveri Garðabæjar og vera aðgengileg á heimasíðu. Spjöld sem vekja athygli á tillögunni ásamt helstu þáttum hennar skulu sett upp á völdum stöðum í sveitarfélaginu.
Boða skal til kynningarfundar miðvikudaginn 2.nóvember kl.16.30-19.00. Fundurinn skal vel auglýstur m.a. með dreifibréfi til allra heimila bæjarins.
Tekið verður við ábendingum vegna tillögunnar hvort sem þær eru settar fram skriflega, með tölvupósti eða þær bornar upp á kynningarfundi. Hægt verði að óska eftir fundi með skipulagsstjóra til að fá útskýringar á einstökum þáttum sem varða hagsmundi viðkomandi.
Að lokinni forkynningu verður unnir úr ábendingum á vegum skipulagsnefndar og bæjarstjórnar sem metur hvort þær kalli á breytingar á tillögunni. Að þeirri skoðu lokinni verður tillögunni vísað aftur til bæjarstjórnar sem metur hvort þær kalli á breytingar á tillögunni. Að þeirri skoðun lokinni verður tillögunni vísað aftur til bæjarstjórna sem vísar tillögunni til auglýsingar samkvæmt 31.gr. Skipulagslaga.
Súsanna Vilhjálmsdóttir fulltrúi Bjartrar framtíðar og Gísli Geir Jónsson fulltrúi Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaðir fulltrúar minnihlutans í skipulagsnefnd lýsa sig ósammála áherslum meirihlutans við gerð nýs aðalskipulags fyrir Garðabæ.
Í fyrsta lagi, lúta mótmælin að landnýtingu og áherslum núverandi yfirvalda á að lágmarka byggð íbúðasvæða þar sem síst skyldi, t.d. Garðaholti, Setbergsholti. Minnt er á að markmið svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins er að þéttleikinn verði um 23 íbúðir á herktara að jafnaði á svæðinu. Garðabær stefnir á um 10-12 íbúðir á hektara.
Í öðru lagi, þá erum við einnig ósammála áherslum meirihlutans um að miða æskilega stærð bæjarins við ákveðna tölu íbúa í stað þess að hámarka nýtingu og arðbærni þess lands sem í boði er og skapa þannig lífvænlega þétta byggð í stað dreifbýlis.
Í þriðja lagi, er óásættanlegt að framsetning umhverfisskýrslunnar skuli vera hagrætt á þann hátt að íbúar hafi takmarkaðar upplýsingar eða þurfa að hafa mikið fyrir að afla sér þekkingar.
Sköpum samfélag þar sem íbúar eiga möguleika á að flytja sig innan hverfis t.d. vegna breytinga á fjölskyldustærð."
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks Sigurður Guðmundsson, Lúðvík Steinarsson og Inga Amal Hasan leggja fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúar meirihluta skipulagsnefndar mótmæla alfarið þeirri fullyrðingu sem fram kemur í bókun minnihluta um að framsetning umhverfisskýrslu hafi verið hagrætt og að framsetning takmarki upplýsingar til íbúa"
Málsnúmer 1607075
02
Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram ný tillaga að auglýsingaskilti við innkeyrslu á lóðina Miðhraun 4. Skipulagsnefnd telur breytingar á skiltinu vera það óverulegar að nefndin vísar í bókun sína frá 18.ágúst sl. Nefndin beinir því til skipulagsfulltrúa að vinna skuli tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem kveður á um skilti og merkingar og byggir á þeirri stefnu sem sett hefur verið fram í tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.