Beint í efni

Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1607075

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Lögð fram ný tillaga að auglýsingaskilti við innkeyrslu á lóðina Miðhraun 4. Skipulagsnefnd telur breytingar á skiltinu vera það óverulegar að nefndin vísar í bókun sína frá 18.ágúst sl. Nefndin beinir því til skipulagsfulltrúa að vinna skuli tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem kveður á um skilti og merkingar og byggir á þeirri stefnu sem sett hefur verið fram í tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir staðsetningu skiltis við innakstur að lóðinni Miðhraun 4. Ekki eru ákvæði til staðar í deiliskipulagi Molduhrauns um skilti en skipulagsnefnd telur að stærð skiltisins og staðsetning samkvæmt framlagðri tillögu geti dregið úr umferðaröryggi við innkeyrslu inn á lóðina auk þess sem það er óþarflega umfangsmikið og til lýta fyrir götumyndina.
Skipulagstjóra falið að undirbúa málslið á næsta fundi nefndarinnar þar sem skiltamál verða rædd.