Beint í efni

18. fundur

03.12.2016
Skipulagsnefnd Garðabæjar

18. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

03.12.2016

Kl. 09:00 - 12:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Á fund nefndarinnar voru mættir aðalskipulagsráðgjafar: Árni Ólafsson, Eva Dís Þórðardóttir, Bergþóra Kristinsdóttir, Yngvi Þór Loftsson og Óskar Örn Gunnarsson: Guðbjörg Brá Gísladóttir nýráðinn verkfræðingur á tækni-og umhverfissviði Garðabæjar sat einnig fundinn.

Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Garðabæajr 2016-2030 að lokinni forkynningu.

Lagðar fram þær ábendingar og umsagnir sem borist hafa á forkynningartíma en frestur til þess að skila inn ábendingum rann út 21.nóvember. Fjöldi ábendinga hefur borist eftir ýmsum leiðum, í gegnum heimasíðu, með tölvupósti, bréfpósti,í viðtölum við skipulagsstjóra og bornar fram á íbúafundi.

Tekin var afstaða til eftirfarandi atriða:

Ekki verður vikið frá því að skilgreina ekki fjölda íbúða innan landnotkunarreita og að tafla á bls.22 í forkynntri greinargerð er viðmiðunartafla til að auðvelda yfirsýn yfir íbúðafjölda.

Nokkrar minniháttar lagfæringar hafa verið gerðar á greinargerð vegna ábendinga umhverfisstjóra.

Stefna varðandi Lyngássvæði er óbreytt.

Á landnotkunarreit 1.02.Íþ á Breiðabólstaðaeyri verður einnig gert ráð fyrir að hægt verði að byggja upp aðstöðu fyrir siglingaíþróttir.

Lögun marka landnotkunarreit við Halakotstjörn verður lagfærð til samræmis við lögun strandar.

Færa skal stíg innan landnotkunarreit 1.07.Íþ að suðurmörkum reitsins.

Skilgreingingar á hámarkshæð gólfkóta nýbygginga á Álftanesi verði lagfærðar þannig að innra samræmis sé gætt en hæðin er 4,2 mys.

Afmörkun landnotkunarreits 1.73 K við Garðakirkju verði stækkaður að Garðavegi þannig að hægt verði að stækka kirkjugarð með breytingu deiliskipulags.

Mannfjöldaspá verði samræmd við spár svæðisskipulags í samráði við svæðisskipulagsstjóra.

Skipulagsákvæði við reit 1.82 Íb við Hrafnistu verði breytt þannig að gert sé ráð fyrir 1-4 hæðum til samræmis við áform Hrafnistu um uppbyggingu á svæðinu.

Áréttað verið í texta við töflu á bls.22 í forkynntri greingargerð að hér sé um miðviðunartöflu að ræða.

Í viðmiðunartöflu á bls. 22 verði gert ráð fyrir 12 íb/ha í Setbergsholti og Svínholti.

Landnotkunartánk á Garðaholti sýni miðsvæði í stað svæðis fyrir verslun-og þjónustu.

Að landnotkunartákn fyrir verslun og þjónustu komi í Hnoðraholti næst Arnarnesvegi og Reykjanesbraut.

Að áætlaður fermetrafjöldi í Urriðaholti lagfærður til samræmis við aðalskipulagsbreytingar sem gerðar hafa verið.

Að landnotkunarreitur 5.19 í Moldurhrauni verði skilgreindur sem athafnasvæði.

Vegtenging frá Kauptúni yfir í Setberg verði skilgreind sem tengibraut.

Í greinargerð komi texti með ákvæði um að vegtenging frá Herjólfsbraut að Álftanesvegi verði leyst þannig að vegalengdir frá svæðinu við Hrafnistu verði sem stystar.

Að því verði haldið opnu að Vífilsstaðavegur sem tengibraut frá Vífilsstöðum í Leirdalsop geti fallið út. Að útfærslu vegtenginga innan þróunarsvæðisins Hnoðraholt, Vetrarmýri, Vífilsstaðir verði vísað til gerðar rammaskipulags svæðisins.

Aðalskipulagsráðgjöfum falið að gera breytingar á tillögunni til samræmis við niðurstöðu fundarins.

Skipulagsstjóra falið að boða til fundar skipulagsyfirvalda í Garðabæ og Hafnarfirði ásamt svæðisskipulagsstjóra og fulltrúum Vegagerðarinnar þar sem málefni "Ofanbyggðavegar" verði rædd. Umræddur fundur verði haldinn fyrir næsta fund nefnarinnar.



Fylgiskjöl