Beint í efni

35. fundur

21.09.2017
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

35. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sjálandsskóla

21.09.2017

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - varamaður
  • Snævar Sigurðsson - varamaður

Starfsmenn

  • Margrét Harðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
  • Elísa Ösp Valgeirsdóttir - fulltrúi kennara

Ritari

  • Margrét Björk Svavarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1709029

01

Ársskýrslur grunnskóla Garðabæjar 2016-2017

Skýrslurnar endurspegla fjölbreytilegt og metnaðarfullt skólastarf.

Rætt var um umfang ársskýrslanna, markmið og tilgang, fulltrúi skólastjóra, kennara og foreldra voru sammála um að skýrslurnar væru mikilvægar fyrir skólastarfið. Skóladeild var falið að skoða yfirlitsblað með skólastjórum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1706011

02

Forvarnarvika í leik- og grunnskólum Garðabæjar 2017

Skólanefnd lýsir ánægju með að forvarnarvika er orðin árviss viðburður. Á þessu skólaári verður fræðsla um líðan, snjalltæki, svefn og svefnvenjur barna og ungmenna. Foreldrar, kennarar og nemendur fá fræðslu um áhrif snjalltækja og svefnvenjur. Umræða var um hvernig forvarnarvikan er metin. Nefndin leggur áherslu á að hafa vikuna sýnilega.

Málsnúmer 1709222

03

Menntadagur í Garðabæ 2017

Menntadagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar verður 27. október.

Dagurinn er mikilvægur fyrir starfsfólk í leik- og grunnskólum til að kynna verkefni sem hlotið hafa styrk úr þróunarsjóðnum og þannig gefst starfsfólki tækifæri til að læra hvert af öðru.

Rætt var um að hafa námskeið á deginum sem nýtist fyrir stuðningsfulltrúa og skólaliða.

Málsnúmer 1709223

04

Nýjungar í Sjálandsskóla

Ánægjulegt að fá kynningu á nýjungum í starfi Sjálandsskóla.