Beint í efni

16. fundur

07.02.2024
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

16. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Alþjóðaskólnum Þórsmörk

07.02.2024

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hafdís Bára Kristmundsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Rakel Svansdóttir - varamaður kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2312336

01

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2024-2025

Skóladagatal leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2024-2025 var lagt fram til kynningar og samþykkt.

Málsnúmer 2401599

02

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2025-2026

Skóladagatal leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2025-2026 var lagt fram til kynningar og samþykkt með þeim fyrirvara að leik- og grunnskólar komi sér saman um að færa starfsdag frá 31. október, til 7. nóvember 2025.

Málsnúmer 2312334

03

Greining og tölfræði grunnskóla 2023

Grunn- og tónlistarskólafulltrúi kynnti greiningu á rekstrarkostnaði og starfsmannahaldi í grunnskólum Garðabæjar.

Málsnúmer 2401597

04

Opnunartími frístundaheimila í Garðabæ

Lagt fram minnisblað fræðslu- og menningarsviðs varðandi breyttan opnunartíma frístundaheimila. Í minnisblaðinu er lagt til að opnunartími frístundaheimila styttist um 30 mínútur á dag eða til kl. 16:30 frá og með 1. apríl n.k. Er það til samræmis við samþykkt Garðabæjar um breytt starfsumhverfis leikskóla er varðar opnunartíma leikskóla.

Skólanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að opnunartími frístundaheimila gunnskóla í Garðabæ styttist um 30 mínútur á dag eða til kl. 16:30 frá og með 1. apríl n.k., til samræmis við opnunartíma leikskóla.

Málsnúmer 2401598

05

Kynning og samtal við stjórnendur Alþjóðaskólans

Skólanefnd þakkar skólastjóra Alþjóðaskólans fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju með að kynnast skólastarfinu með þessum hætti. Skólastjóri fór yfir áherslur skólans, áskoranir, framtíðarhorfur og nýtt húsnæði skólans var skoðað. Skólanefnd óskar Alþjóðaskólanum til hamingju með húsnæðið.