Opnunartími frístundaheimila í Garðabæ
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (936). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skólanefndar um breyttan opnunartíma frístundaheimila. Opnunartími verður styttur frá og með 1. apríl um 30 mínútur á dag eða til 16:30. (Var áður kl. 17:00) (Mál nr. 2401597)
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (2107). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði varðandi tillögu um breyttan opnunartíma frístundaheimila sem lagt var fram á fundi skólanefndar 7. febrúar 2024.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skólanefndar um breyttan opnunartíma frístundaheimila Opnunartími verður styttur frá og með 1. apríl um 30 mínútur á dag eða til 16:30. (Var áður kl. 17:00)
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
16. fundur
Lagt fram minnisblað fræðslu- og menningarsviðs varðandi breyttan opnunartíma frístundaheimila. Í minnisblaðinu er lagt til að opnunartími frístundaheimila styttist um 30 mínútur á dag eða til kl. 16:30 frá og með 1. apríl n.k. Er það til samræmis við samþykkt Garðabæjar um breytt starfsumhverfis leikskóla er varðar opnunartíma leikskóla.
Skólanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að opnunartími frístundaheimila gunnskóla í Garðabæ styttist um 30 mínútur á dag eða til kl. 16:30 frá og með 1. apríl n.k., til samræmis við opnunartíma leikskóla.