4. fundur
4. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
Í Urriðaholtsskóla
04.11.2026
Kl. 08:15 - 10:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Guðjón Þór Þorsteinsson - aðalmaður
- Rakel Margrét Viggósdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - áheyrnarfulltrúi
- Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi
- Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Hannes Ingi Geirsson - fulltrúi kennara
- Guðbjörg Birna Björnsdóttir - fulltrúi foreldra
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Viðurkenningar í skólastarfi 2026
Menntadagur Garðabæjar var haldinn hátíðlegur föstudaginn 30. október 2026. Á deginum komu saman rúmlega 550 starfsmenn leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva í bænum.
Við það tilefni voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi þróunar- og umbótaverkefni í skólastarfi. Alls voru sex verkefni valin til viðurkenningar, þrjú frá leikskólastigi og þrjú frá grunnskólastigi. Verkefnin sýna fram á fagmennsku, nýsköpun og metnað starfsfólks til að efla nám, vellíðan og þátttöku barna og ungmenna.
Eftirfarandi verkefni hlutu viðurkenningu:
Leikskólastig
Leikskólinn Akrar - íþróttakennsla.
Leikskólinn Urriðaból við Holtsveg og við Kauptún - Leiðsögn og málörvun
Leikskólinn Hæðarból. Leggjum við hlustir ? börn hafa rödd ?
Grunnskólastig
Sjálandsskóli - Hjólað á skólatíma.
Álftanesskóli í samstarfi við leikskólana Holtakot og Krakkakot - Brúum bilið
Flataskóli - Stólaverkefnið
Skólanefnd óskar öllum viðurkenningarhöfum og þeim sem komu að verkefnunum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar jafnframt öllu starfsfólki skólasamfélagsins fyrir öflugt og metnaðarfullt starf í þágu barna og ungmenna í Garðabæ.
02
Orð og sögur - samstarfsverkefni bókasafns og fræðslusviðs Garðabæjar
Kynnt var verkefnið „Orð og sögur“, samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar og fræðslu- og frístundasviðs Garðabæjar og leik- og grunnskóla í bænum. Verkefnið nær til allra nemenda í 4.-8. bekk grunnskóla bæjarins og miðar að því að efla orðaforða, lesskilning, lestrargleði og skapandi ritun. Nemendur vinna sögur út frá íslenskum námsorðaforða og taka þátt í ritunarkeppni. Verkefnið hefst á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember og stendur til 20 nóvember.
03
Viðmið um skólasókn í grunnskólum Garðabæjar
Lagt var fram nýútgefið kynningarefni frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um sameiginleg viðmið um skólasókn undir yfirskriftinni „Hver dagur skiptir máli“. Um er að ræða verklag sem byggir á snemmtæku inngripi, markvissri eftirfylgni og samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að styðja við reglulega skólasókn og bregðast snemma við, þegar auknar fjarvistir koma fram. Áhersla er lögð á að leita leiða til að tryggja að nemendur mæti í skóla og njóti þar farsæls náms og þátttöku.
04
Forvarnarvikan í Garðabæ 2026
Forvarnarvika í Garðabæ verður haldin dagana 4.- 11. nóvember. Vikan hefst með fræðslufundi fyrir foreldra barna í Garðabæ, þar sem fjallað verður um mikilvægi tengsla og farsældar barna og ungmenna.
Leik- og grunnskólar Garðabæjar taka virkan þátt í forvarnarvikunni og verða með fjölbreytta dagskrá sem miðar að því að efla vellíðan, seiglu, félagsfærni og jákvætt skólasamfélag hjá börnum og ungmennum.
05
Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2026-2027
Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi Garðabæjar, sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2026-2027. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
06
Þróunarsjóður grunnskóla 2027
Rætt var um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2027.
07
Kynning og samtal við stjórnendur Urriðaholtsskóla
Skólanefnd lýsir ánægju sinni með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti. Jafnframt var kynntur nýr og síðasti áfangi uppbyggingar skólans, sem felur í sér stækkun á skólahúsnæðinu og nýju íþróttahúsi. Skólanefnd fagnar þeim mikilvægu framkvæmdum sem munu styrkja aðstöðu nemenda og starfsfólks enn frekar.