Beint í efni

36. fundur

15.01.2026
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

36. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

15.01.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Anna María Skúladóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2601137

01

Fjarhagsáætlun 2026 - grunnskólar

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar kynnti fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026.

Málsnúmer 2510245

02

Þróunarsjóður grunnskóla 2026

Auglýsing Þróunarsjóðs grunnskóla 2026 lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2405508

03

Þrepaskipt skólaþjónusta í leik- og grunnskólum Garðabæjar

Grunnskólafulltrúi kynnti þrepaskipta skólaþjónustu í leik- og grunnskólum sem verið er að innleiða í skóla í Garðabæ. Þrepaskipt skólaþjónusta er heildstætt skipulag kennslu, starfshátta og stuðningsúrræða í skólum þar sem þverfagleg teymi kennara og fagfólks skipuleggja stuðningsúrræði fyrir einstaka nemendur.

Málsnúmer 2601138

04

Gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ

Grunnskólafulltrúi kynnti og sagði frá innleiðingu Gæða kennslustunda (STiP) í grunnskóla Garðabæjar. Farið var yfir STiP sem er faglegt efni sem styður kennara í að efla gæði kennslu.Efnið byggir á rannsóknum norrænna og alþjóðlegra fræðimanna, hefur verið þýtt og aðlagað að íslensku skólastarfi. Til kennslunstundarýnis verður notað kerfið Bravo Lesson en það styður skólastjórnendur við skipulagðar vettvangsathuganir í kennslustundum, skráningu niðurstaðna og faglega endurgjöf til kennara.