Beint í efni

Þróunarsjóður grunnskóla 2026-2027

Málsnúmer 2510245

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

39. fundur

Lagt var fram til kynningar upplýsingar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar 2026. Að þessu sinni bárust 25 umsóknir, sótt var um kr. 57.631.860.- Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu, 20 verkefni fengu úthlutað. Skólanefnd lagði til við bæjarráð að úthlutað yrði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 28.000.000.-, í samræmi við reglur sjóðsins. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni um metnaðarfullt og framsækið skólastarf í Garðabæ og hvetur þá sem ekki fengu úthlutað að þessu sinni að sækja um að ári liðnu.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

38. fundur

Úthlutað var úr Þróunarsjóði grunnskóla 2026. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 28.000.000.-, í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust 25 umsóknir, sótt var um var um kr. 57.631.860.- Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu, 20 verkefni fengu úthlutað. Skólastjórnendur komu sem gestir á fundinn og kynntu sínar umsóknir. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni um metnaðarfullt og framsækið skólastarf í Garðabæ og hvetur þá sem ekki fengu úthlutað að þessu sinni að sækja um að ári liðnu.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

36. fundur

Auglýsing Þróunarsjóðs grunnskóla 2026 lögð fram til kynningar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

35. fundur

Umræður voru um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2026. Formanni skólanefndar og fræðslu- og menningarsviði er falið að útfæra áherslur og auglýsa.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

34. fundur

Rætt var um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2026.