Beint í efni

01. fundur

15.03.2024
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

15.03.2024

Kl. 14:00 - 15:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Linda Udengård - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2309001HO

01

Rekstur 2023

Farið yfir rekstrarreikning fyrir árið 2023.

Samkvæmt rekstrarreikningi frá 21 febrúar er rekstur 205.000 undir áætlun.

Málsnúmer 2402002HO

02

Leki skólp í varðveislurými 13 febrúar 2024

Skólp kom upp úr ræsum í vaðveislurými safnsins þann 13. feb.. Farið yfir atvikið og hvernig brugðist hefur verið við.

Lagnir undir varðveislurými safnsins voru myndaðar í kjölfar þess að þrisvar sinnum hefur komið upp skólp í rýmið frá því í haust. Í ljós kom sig á lögnum og fór Reginn í viðgerðir. Færa varð safngripi til í önnur rými. Ekki tókst að finna orsök vandamálsins og Vatnsveita Garðabæjar hefur verið kölluð til.

Forstöðumaður og stjórn hafa áhyggjur af ástandinu á varðveislurýminu en þar er einnig flókið og mikið vatnslagnakerfi í loftum sem er komið til ára sinna. Stjórn safnsins, yfirmaður sviðsins og bæjarstjóri hafa lýst áhyggjum sínum við viðskipta-og menningarmálaráðuneytið.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs mun ítreka beiðni um fundarboð frá ráðuneytinu.

Málsnúmer 2402003HO

03

Dagatal 2024

Dagskrá safnsins 2024 kynnt

Þessar sýningar standa nú yfir í safninu:

Hönnunarsafnið sem heimili, sett upp sem grunnmynd af heimili með 200 gripum úr safneign.

Gullsmiður í vinnustofudvöl - Marta Staworowska

Skart - samstarf við Textílfélagið í tilefni af 50 ára afmæli félgasins

Sýningar framundan:

Hvernig dans varð að vöruhönnun, framlag safnsins á Barnamenningarhátíð opnar 22. apríl

Hvernig dans varð að vöruhönnun, framlag safnsins á HönnunarMars opnar 23. apríl

Greinar og Strá - samstarf við Textílfélagið opnar 17. júní

Körfugerðarkona í vinnustofudvöl opnar 17 júní

Viðburðir framundan:

Textílsmiðja fyrir alla fjölskylduna sunnudaginn 7. apríl

Fyrirlestur um Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt, sunnudaginn 21. apríl

Opnun Hvernig dans varða að vöruhönnun, Barnamenningarhátíð 22. apríl

Opnun Hvernig dans varð að vöruhönnun, HönnunarMars 23. apríl

Uppskeruhátíð í vinnustofudvöl hjá Mörtu Staworowsku 23. apríl

Uppskeruhátíð Barnamenningarhátíðar í Garðabæ 27. apríl

Flugdrekasmiðja sunnudaginn 5 maí

leiðsögn um sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili, sunnudaginn 19. maí

Móttaka skólahópa í tengslum við Barnamenningarátíð

Hvernig dans varða að vöruhönnun, leiksýning og smiðja fyrir 4. bekk. Tekið verður á móti samtals 12 bekkjum.

Bingó smiðja, leikur að orðum fyrir 7. bekk. Tekið verður á móti samtals 9 bekkjum.

Málsnúmer 2306001HO

04

Stefnumótun 2023 - 2027

Ákvörðun tekin varðandi raunhæfar áherslur á árinu 2024 með hliðsjón af Stefnumótun stjórnar.

Sérstök áhersla verður lögð á að vinna ítarlegri söfnunarstefnu fyrir safnið. Byrjað verður á stefnu fyrir keramik og húsgögn.

Málsnúmer 2403003HO

05

Manfreð Vilhjálmsson

Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt, afhendir safninu teikningasafn sitt

Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt, skrifaði undir gjafabréf þar sem hann færði safninu frumrit af teikningum sínum sem spanna megnið af ævistarfi hans.

Málsnúmer 2403002HO

06

Styrkir 2024

Safnið hlaut þrjá styrki frá Safnasjóði fyrir árið 2024

samtals 6,5m

Verkefnin sem hlutu styrk voru:

Átak í skráningu og grisjun - framhald - 2.500.000 kr

Bók um Svein Kjarval eftir Arndísi S. Árnadóttur - 1.500.000 kr

Hönnuðir í opinni vinnustofu - lifandi sýning - 2.500.000 kr

Safnið hlaut þrjá styrki frá Safnasjóði fyrir árið 2024

samtals 6,5m

Verkefnin sem hlutu styrk voru:

Átak í skráningu og grisjun - framhald - 2.500.000 kr

Bók um Svein Kjarval eftir Arndísi S. Árnadóttur - 1.500.000 kr

Hönnuðir í opinni vinnustofu - lifandi sýning - 2.500.000 kr

Styrkirnir endurspegla áherslur á lifandi starf, rannsóknir og skráningu

Málsnúmer 2403001HO

07

Virk starfsendurhæfing

Tilnefning frá Virk starfsendurhæfingu

Safnið var eitt af 15 samstarfsaðilum Virk starfsendurhæfingar sem var tilnefnt til viðurkenningarinnar VIRKt fyrirtæki 2024. Tvö fyrirtæki af þeim 15 sem eru tilnefnd munu svo hljóta viðurkenninguna í ár og verða sigurvegarar tilkynntir á ársfundi VIRK 29. apríl 2024.