Leki skólp í varðveislurými 13 febrúar 2024
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
02. fundur
Farið yfir stöðuna á leka í varðveislurými safnsins.
Búið er að finna brunninn sem frárennslislagnir safnsins liggja í en þar var enga skýringu að finna enda stíflan losnuð. Engin niðurstaða hefur því fengist í ástæðu fyrir því að í tvígang hefur flætt skólp inn í varðveislurými safnsins á árinu.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
02
01. fundur
Skólp kom upp úr ræsum í vaðveislurými safnsins þann 13. feb.. Farið yfir atvikið og hvernig brugðist hefur verið við.
Lagnir undir varðveislurými safnsins voru myndaðar í kjölfar þess að þrisvar sinnum hefur komið upp skólp í rýmið frá því í haust. Í ljós kom sig á lögnum og fór Reginn í viðgerðir. Færa varð safngripi til í önnur rými. Ekki tókst að finna orsök vandamálsins og Vatnsveita Garðabæjar hefur verið kölluð til.
Forstöðumaður og stjórn hafa áhyggjur af ástandinu á varðveislurýminu en þar er einnig flókið og mikið vatnslagnakerfi í loftum sem er komið til ára sinna. Stjórn safnsins, yfirmaður sviðsins og bæjarstjóri hafa lýst áhyggjum sínum við viðskipta-og menningarmálaráðuneytið.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs mun ítreka beiðni um fundarboð frá ráðuneytinu.