Beint í efni

27. fundur

04.01.2018
Ungmennaráð Garðabæjar

27. fundur

Ungmennaráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

04.01.2018

Kl. 17:00 - 18:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Ásta Glódís Vestm. Ágústsdóttir - aðalmaður
  • Jóel Ísak Jóelsson - aðalmaður
  • Ísabella Hrönn Sigurjónsdóttir - aðalmaður
  • Viktoría Þóra Jónsdóttir - aðalmaður
  • Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður
  • Gabríella Snót Ó. Schram - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sunna Guðrún Sigurðardóttir - þjónustustjóri
  • Helga Vala Gunnarsdóttir - forstöðumaður Klakans
  • Sigríður Elísabet Ragnarsdótti - forstöðumaður Elítunnar

Ritari

  • Helga Vala Gunnarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1709114

01

Kynningar á ungmennaráði og ungmennaþing í Garðabæ

1. Ávarp bæjarstjóra

Gestir fundarins voru Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar, Sigríður Björk Gunnarsdóttir formaður mannréttinda- og forvarnanefndar og Björg Fenger formaður ÍTG.

Ungmennaráð boðið velkomið á bæjarskrifstofur og þeim þakkað fyrir boðið á fundinn. Bæjarstjóri lýsir yfir ánægju sinni með ungmennaþingið og starf ungmenna fyrir bæinn.

2. Helstu niðurstöður ungmennaþings

Margar tillögur og hugmyndir komu fram á ungmennaþinginu sem haldið var 8. nóvember sl. sem skoðaðar hafa verið af ungmennaráði Garðabæjar og ráðum/nefndum bæjarins.

Mikil umræða myndaðist um mörg málefni.

Má þar nefna:

- fræðslumál

- kvíða - hvert ungmenni geti leitað

- vilji til að opna umræðu um geðheilbrigðismál

- opnun ungmennahúss

- hugleiðsla sem skyldufag í grunnskólum

- símnotkun

- rafsígarettu notkun ungmenna

- snapchat til að nálgast ungmenni

- námsmannaíbúðir

- aukin fræðsla um sjálfstraust

- plasttunnur í Garðabæ

- sameiginleg böll á unglingastigi

- tölvunotkun í skólum

Nú er að hefjast handa og vinna í þeim málum sem eru mikilvægust.

3. Önnur mál

Að lokum var rætt um að vilji sé fyrir því að fá meðlimi ungmennaráðs til að sitja á fundum og í ráðum bæjarins í meiri mæli.

Skólaþing er í febrúar og skólanefnd vill fá ungmennaráðið í samstarf.

Spurning kom til ungmennanna hvort þeim fyndist þau vera örugg í Garðabæ og öll gátu þau verið sammála um það að þau væri örugg.

Nýr fundartími ekki ákveðinn.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:12