Kynningar á ungmennaráði og ungmennaþing í Garðabæ
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
27. fundur
1. Ávarp bæjarstjóra
Gestir fundarins voru Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar, Sigríður Björk Gunnarsdóttir formaður mannréttinda- og forvarnanefndar og Björg Fenger formaður ÍTG.
Ungmennaráð boðið velkomið á bæjarskrifstofur og þeim þakkað fyrir boðið á fundinn. Bæjarstjóri lýsir yfir ánægju sinni með ungmennaþingið og starf ungmenna fyrir bæinn.
2. Helstu niðurstöður ungmennaþings
Margar tillögur og hugmyndir komu fram á ungmennaþinginu sem haldið var 8. nóvember sl. sem skoðaðar hafa verið af ungmennaráði Garðabæjar og ráðum/nefndum bæjarins.
Mikil umræða myndaðist um mörg málefni.
Má þar nefna:
- fræðslumál
- kvíða - hvert ungmenni geti leitað
- vilji til að opna umræðu um geðheilbrigðismál
- opnun ungmennahúss
- hugleiðsla sem skyldufag í grunnskólum
- símnotkun
- rafsígarettu notkun ungmenna
- snapchat til að nálgast ungmenni
- námsmannaíbúðir
- aukin fræðsla um sjálfstraust
- plasttunnur í Garðabæ
- sameiginleg böll á unglingastigi
- tölvunotkun í skólum
Nú er að hefjast handa og vinna í þeim málum sem eru mikilvægust.
3. Önnur mál
Að lokum var rætt um að vilji sé fyrir því að fá meðlimi ungmennaráðs til að sitja á fundum og í ráðum bæjarins í meiri mæli.
Skólaþing er í febrúar og skólanefnd vill fá ungmennaráðið í samstarf.
Spurning kom til ungmennanna hvort þeim fyndist þau vera örugg í Garðabæ og öll gátu þau verið sammála um það að þau væri örugg.
Nýr fundartími ekki ákveðinn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:12
Ungmennaráð Garðabæjar
02
26. fundur
1. Ungmennaþing Garðabæjar.
Ungmennaþingið rætt.
2. Yfirferð yfir málefni og niðurstöður ungmennaþings
Margar tillögur og hugmyndir komu fram á ungmennaþinginu sem haldið var 8. nóvember sem skoðaðar eru af ungmennaráði Garðabæjar og kynntar í ráð og nefndir. Meðlimir ungmennaráðsins fara yfir allar hugmyndir og koma þeim á rétta staði innan bæjarins.
Ungmennaráð vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í þinginu og komu með hugmyndir og ábendingar.
Ekki komst ráðið yfir allar tillögur og bíður sú yfirferð til næsta fundar.
3. Breytingar í ráðinu - Nýjir meðlimir kynntir
FG skipar Fjólu Ýr Jörundsdóttur sem fulltrúa síns skóla í ungmennaráð Garðabæjar og bjóðum við hana velkomna.
Nýr fundartími var ekki ákveðinn, fundi slitið kl. 18:20.
Ungmennaráð Garðabæjar
03
25. fundur
Undirbúningur fyrir ungmennaþing. Hlutverk meðlima rædd og undirbúin.
Ungmennaráð Garðabæjar
04
23. fundur
Þráðurinn tekinn upp og lokahönd lögð á undirbúning og ákvörðun tekin um að halda kynningar í Sjálands-, Garða-, Álftanesskóla og Fjölbrautarskóla Garðabæjar. Kynningum á að vera lokið í lok september.
Ungmennaþing skal haldið í byrjun nóvember. Undirbúningur hafinn.