23. fundur
23. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar
í Sjálandsskóla
28.08.2017
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður
- Anna Katrín Hálfdanardóttir - aðalmaður
- Fannar Ingi Grétarsson - aðalmaður
- Jóel Ísak Jóelsson - aðalmaður
- Gabríella Snót Ó. Schram - aðalmaður
Starfsmenn
- Helga Vala Gunnarsdóttir - forstöðumaður Klakans
Ritari
- Gabríella Snót Schram
Dagskrá
Málsnúmer 1709114
01
Kynningar á ungmennaráði og ungmennaþing í Garðabæ
Þráðurinn tekinn upp og lokahönd lögð á undirbúning og ákvörðun tekin um að halda kynningar í Sjálands-, Garða-, Álftanesskóla og Fjölbrautarskóla Garðabæjar. Kynningum á að vera lokið í lok september.
Ungmennaþing skal haldið í byrjun nóvember. Undirbúningur hafinn.
Málsnúmer 1709115
02
Fundur ungmennaráðs með ÍTG
Jóel Ísak og Freymar fóru á fund ÍTG 31. maí sl. þar sem vel var tekið á móti þeim og þeirra fyrirspurnum og athugasemdum. Jóel kynnti fundramönnum efni fundarins.
Málsnúmer 1703341
03
Ungmennaráð - skipulag
1. Mætingar meðlima ungmennaráðs ræddar. Mikilvægt er að meðlimir mæti vel á fundina eða fái varamenn sína til að mæta og fylgist vel með skilaboðum.
2. Meðlimir ungmennráðs óska eftir meiri samveru til að kynnast betur.
3. Breytingar innan ráðsins. Sólveig Marý Einarsdóttir, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, Selma Rós Axelsdóttir, Freymar Örn Ómarsson og Snæfríður Blær Tindsdóttir eru hætt í ráðinu og farið verður af stað með að fylla í þeirra sæti. Ráðið þakkar þeim fyrir þeirra störf.
4. Samþykkt var að fundartími yrði ákveðinn á fyrri fundum. Næsti fundur er 18. september kl. 17-18.