Beint í efni

Ungmennaráð - skipulag

Málsnúmer 1703341

Ferill máls

Ungmennaráð Garðabæjar

01

24. fundur

1. Kynningar á ungmennaráði Garðabæjar

Vinna við undirbúning á kynningum, sendar upplýsingar til skóla o.fl.



2. Ungmennaþing Garðabæjar.

Ungmennaþing skal haldið í byrjun nóvember. Undirbúningur heldur áfram. Málefni ákveðin og skemmtiatriði.

3. Breytingar í ráðinu

Nýjir meðlimir kynntir. Garðaskóli skipar Ísabellu Hrönn Sigurjónsdóttur, Viktoríu Þóru Jónsdóttur og Sóldísi Eik Þorsteinsdóttur og Álftanesskóli skipar Ástu Glódísi Vestmann Ágústsdóttur sem fulltrúa sinna skóla í ungmennaráð Garðabæjar og bjóðum við þær velkomnar.

4. Önnur mál

Fyrirspurn barst ráðinu varðandi rólur og leiktæki fyrir leikskólann Holtakot. Erindi verður vísað til Halldóru Pétursdóttur verkefnastjóra skólasviðs.


Ungmennaráð Garðabæjar

02

23. fundur

1. Mætingar meðlima ungmennaráðs ræddar. Mikilvægt er að meðlimir mæti vel á fundina eða fái varamenn sína til að mæta og fylgist vel með skilaboðum.

2. Meðlimir ungmennráðs óska eftir meiri samveru til að kynnast betur.

3. Breytingar innan ráðsins. Sólveig Marý Einarsdóttir, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, Selma Rós Axelsdóttir, Freymar Örn Ómarsson og Snæfríður Blær Tindsdóttir eru hætt í ráðinu og farið verður af stað með að fylla í þeirra sæti. Ráðið þakkar þeim fyrir þeirra störf.

4. Samþykkt var að fundartími yrði ákveðinn á fyrri fundum. Næsti fundur er 18. september kl. 17-18.

Ungmennaráð Garðabæjar

03

22. fundur

Sumartónleikar í Garðabæ ræddir, ungmenni hafa áhuga á að halda utan um slíkan viðburð.

Ungmennaráð Garðabæjar

04

21. fundur

1. Ráðið hefur áhuga á að búa til netfang.

2. Hugmynd er að búa til „póstkassa“ á heimasíðu Garðabæjar þar sem hægt er að senda fyrirspurnir eða athugasemdir til ráðsins.

3. Umræða um smokka, dömubindi og túrtappa fyrir unglinga og ungmenni innan skólum Garðabæjar. Ráðið var sammála að þetta ætti að vera frítt í öllum skólum og auðvelda aðgang að þessum vörum fyrir þá sem þurfa.

4. Rætt um að þurfi að malbika og laga götur við Ásgarð og Garðaskóla.

5. Hugmynd um tónlistarhátíð í sumar sem skipulögð og framkvæmd yrði af ungmennaráðinu.

Forstöðumaður Elítunnar kynnti Elítuna og ráðið skoðaði sig um í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar.

Ungmennaráð Garðabæjar

05

20. fundur

1. Kosning á formanni, varaformanni og ritara ráðsins.

Birta Ósk Hjaltadótur bauð sig fram til formanns og fékk samþykki ráðsins til formennsku. Jóel Ísak Jóelsson bauðsig fram sem varaformann og fékk samþykki ráðsins til varaformennsku. Ákveðið var að fundarritun skiptist á milli fulltrúa ráðsins.

2. Undirbúningur á kynningum ungmennaráðs í skóla bæjarins

Hópurinn skipulagði kynningar sem þau ætla að fara með í skóla Garðabæjar á vorönn 2017.

3. Önnur mál

1) Rætt var um að búa til logo fyrir ráðið

2) Skipulagður tími fyrir námskeiðið „ Maður á alltaf að segja það sem manni finnst“ á vegum Andra Ómarssonar, sérfræðingi í Ungmennaráðum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10.