21. fundur
21. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar
í Sjálandsskóla
06.04.2017
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Elías Kristinn Kristinsson - aðalmaður
- Birta Ósk Hjaltadóttir - aðalmaður
- Selma Rós Axelsdóttir - aðalmaður
- Jóel Ísak Jóelsson - aðalmaður
- Anna Katrín Hálfdanardóttir - aðalmaður
- Snæfríður Tindsdóttir - aðalmaður
- Gabríella Snót Ó. Schram - varamaður
- Trausti Jónsson - varamaður
Starfsmenn
- Helga Vala Gunnarsdóttir - forstöðumaður Klakans
- Sigríður Elísabet Ragnarsdótti - forstöðumaður Elítunnar
Ritari
- Elías Kristinn Kristinsson
Dagskrá
Málsnúmer 1703142
01
Stefnumótun í æskulýðsmálum
Skýrsla rædd og athugasemdir skráðar og sendar á viðeigandi aðila.
Málsnúmer 1703341
02
Ungmennaráð - skipulag
1. Ráðið hefur áhuga á að búa til netfang.
2. Hugmynd er að búa til „póstkassa“ á heimasíðu Garðabæjar þar sem hægt er að senda fyrirspurnir eða athugasemdir til ráðsins.
3. Umræða um smokka, dömubindi og túrtappa fyrir unglinga og ungmenni innan skólum Garðabæjar. Ráðið var sammála að þetta ætti að vera frítt í öllum skólum og auðvelda aðgang að þessum vörum fyrir þá sem þurfa.
4. Rætt um að þurfi að malbika og laga götur við Ásgarð og Garðaskóla.
5. Hugmynd um tónlistarhátíð í sumar sem skipulögð og framkvæmd yrði af ungmennaráðinu.
Forstöðumaður Elítunnar kynnti Elítuna og ráðið skoðaði sig um í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar.