Beint í efni

20. fundur

01.03.2017
Ungmennaráð Garðabæjar

20. fundur

Ungmennaráð Garðabæjar

í Sjálandsskóla

01.03.2017

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Elías Kristinn Kristinsson - aðalmaður
  • Birta Ósk Hjaltadóttir - aðalmaður
  • Ingibjörg Þór Árnadóttir - aðalmaður
  • Jóel Ísak Jóelsson - aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir - varamaður
  • Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Vala Gunnarsdóttir - forstöðumaður Klakans

Ritari

  • Helga Vala Gunnarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1703341

01

Ungmennaráð - skipulag

1. Kosning á formanni, varaformanni og ritara ráðsins.

Birta Ósk Hjaltadótur bauð sig fram til formanns og fékk samþykki ráðsins til formennsku. Jóel Ísak Jóelsson bauðsig fram sem varaformann og fékk samþykki ráðsins til varaformennsku. Ákveðið var að fundarritun skiptist á milli fulltrúa ráðsins.

2. Undirbúningur á kynningum ungmennaráðs í skóla bæjarins

Hópurinn skipulagði kynningar sem þau ætla að fara með í skóla Garðabæjar á vorönn 2017.

3. Önnur mál

1) Rætt var um að búa til logo fyrir ráðið

2) Skipulagður tími fyrir námskeiðið „ Maður á alltaf að segja það sem manni finnst“ á vegum Andra Ómarssonar, sérfræðingi í Ungmennaráðum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10.