Beint í efni

3. fundur

21.03.2024
Ungmennaráð Garðabæjar

3. fundur

Ungmennaráð Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

21.03.2024

Kl. 16:00 - 16:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Valgerður Eyja Eyþórsdóttir - formaður
  • Íris Lind Steinþórsdóttir
  • Anna Kristín Elmarsdóttir
  • Heiða Bríet Andradóttir
  • Emilía Ósk Hauksdóttir
  • Eyþór Elvar Þórarinsson
  • Auður Ýr Magnúsdóttir
  • María Draumey Kjærnested
  • Freyja Huginsdóttir
  • Ester Helga Helgadóttir
  • Daníel Pétursson

Starfsmenn

  • Tómas Þór Jacobsen
  • Gunnar Richardson

Ritari

  • Tómas Þór Jacobsen

Fundur ungmennaráðs með bæjarstjórn Garðabæjar og fulltrúum nefnda.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, Almar Guðmundsson,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Brynja Dan Gunnarsdóttir, Gunnar Valur Gíslason, Sara Dögg Svanhildardóttir, Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir, Margrét Bjarnadótir, Hrannar Bragi Eyjólfsson.

Aðrir gestir: Guðbjörg Linda Udengard, Gunnar Richardson og Tómas Jacobsen umsjónarmaður.
Einnig sat fundinn með ungmennaráði Una Kristjana Hannesdóttir.

Dagskrá

Málsnúmer 2401576

01

Starf og verkefni ungmennaráðs.

Valgerður Eyja Eyþórsdóttir formaður ungmennaráðs rakti helstu verkefni ráðsins á undanförnum mánuðum. Ráðið hefur fengið aukið vægi og þróast mikið á síðustu árum og finna fyrir því að bærinn tekur ráðið alvarlega og felur því fleiri verkefni.

Ungmennaráð hélt vel heppnað ungmennaþing í október sl. Fulltrúar hafa setið í stýrihóp Barnvæns sveitarfélags, farið á ráðstefnur m.a. á vegum Unicef og tekið þátt og verið sýnileg á stórum viðburðum félagsmiðstöðva bæjarins svo eitthvað sé nefnt.



Til máls tóku ýmsir bæjarstjórnarfulltrúar og þökkuðu fyrir góða kynningu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar gat þess sérstaklega að fundargerðir ungmennaráðs væru mikilvægar og teknar til umfjöllunnar sbr. aðrar fundargerðir nefnda.

Málsnúmer 2401576

02

Ungmennahús og aðstaða fyrir ungt fólk.

Emilía Ósk Hauksdóttir fulltrúi í ungmennaráði ræddi vöntun á aðstöðu fyrir ungt fólk. Rakti hún verkefnið sem verið hefur til skoðunar í langan tíma. Það sé þörf og vöntun á aðstöðu þar sem fólk getur hist, lært saman, unnið að listsköpun og eflt félagsleg tengsl. Nefndi hún dæmi um það sem vel er gert í öðrum sveitarfélögum.

Einnig vitnaði Emilía í Berglindi M. Valdimarsdóttur, forvarnarfulltrúa FG sem telur mikla þörf á ungmennahúsi. Oft á tíðum er ekki mikið í boði fyrir ungmenni á þessum aldri og því eru mörg ungmenni sem leitast út í drykkju eða annað óæskilegt. Það hafa ekki allir áhuga á því að fara í ræktina eða stunda skipulagt íþróttastarf og því telur hún þetta mikilvægt skref fyrir Garðabæ til þess að mæta þörfun ungmenna og auka félagsleg tengsl og andlegan líðan.



Í umræðum bæjarstjórnarfulltrúa kom fram að málið hefur legið í dvala m.a. vegna Covid og eins var málið tengt endurskoðun á húsnæði Betrunarhússins á Garðatorgi sem varð ekki eins og til stóð um tíma. Sigríður Hulda Jónsdóttir bæjarfulltrúi benti á að skoða möguleika varðandi Miðgarð og Harpa Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi hvatti til þess að eiga meira samtal um málið.

Eftir umræðu lagði forseti bæjarstjórnar fram eftirfarandi tillögu.



"Ungmennaráð og bæjarstjórn Garðabæjar eru sammála um fara í hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum. Verði meðal annars byggt á fyrri vinnu Íþrótta og tómstundaráðs um sama mál. Fulltrúar úr íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði skulu vinna að málinu í sameiningu og leggi fram áfangaskýrslu fyrir lok september 2024."



Tillagan var samþykkt af öllum fulltrúum ungmennaráðs og bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2401576

03

Samgöngumál.

Freyja Huginsdóttir fulltrúi í ungmennaráði ræddi samgöngur. Ungmenni eiga erfitt með að koma sér heim á kvöldin eftir tómstundastarf þar sem Strætó er oft hættur að ganga á þeim tíma og slíkt er ekki viðunandi. Ungmenni vilja vera frjáls ferða sinna og ekki hafa allir þann möguleika að fá foreldri eða systkini til þess að sækja sig. Þau vilja tryggja að ungmenni í Garðabæ geti treyst á Strætó og komist heil á húfi heim.

Öflugar almenningssamgöngur hafa einnig jákvæð áhrif á umhverfið. Allt er þegar þrennt er - frelsi, öryggi og bætt umhverfi.



Hrannar Bragi Eyjólfsson, fulltrúi bæjarins í stjórn Strætó nefndi að þessi mál væru í sífelldri skoðun og reynt væri að bæta þjónustuna. Nefndi hann að verið væri að skoða nýtt app sem ætti að bæta utantímaþjónustuna. Vakti hann einnig athygli á nýjum rafstrætóum í Garðabæ. Almar Guðmundsson bæjarstjóri, minnti á að allt kostar og nú er hlutur Garðabæjar hálfur milljarður í rekstrinum. Sara Dögg Svanhildardóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir tóku undir röksemdir vegna öryggis- og umhverfissjónarmiða og aukin notkun vagna væri besta leiðin til sýna meiri þörf fyrir þjónustuna.

Málsnúmer 2401576

04

Fræðsla í skólum.

María Draumey Kjærnested fulltrúi ungmennaráðs ræddi almennt um fræðslu í skólum. Ýmislegt mætti bæta t.d. fjármálalæsi, lestur launaseðla ofl. Ungmenni í Garðabæ kalla eftir meiri fræðslu en þá helst um fíkniefni, kynfræðslu, samskipti, skyndihjálp og kynbundið ofbeldi. Hvað varðar fræðslu í skólum þá virðist vanta samræmi á milli skóla því ekki allir skólar í Garðabæ fá sömu fræðslu. Á ungmennaþinginu var rætt um Sjúkást kynninguna sem öll ungmenni ættu að fá áður en þau fara á Samfés.

Einnig var rætt um að það vanti meiri samfellu í kynfræðslu og nauðsyn þess að byrja fyrr en síðar með fræðsluna. Mælingar og tölur um kynbundið ofbeldi væru háar.



Ungmennaráðið er að vinna að úrvinnslu þeirra hugmynda sem fengust af Ungmennaþingi Garðabæjar 2023 og að koma þeim á framfæri og í framkvæmd sem fyrst.



Til máls tóku bæjarfulltrúar, Gunnar Valur Gíslason, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Harpa Þorsteinsdóttir. Hvöttu þau ungmennaráð til dáða og þökkuðu það sem lagt var til málanna. Gunnar Valur Gíslason ræddi vinnu við jafnréttisáætlun og mikilvægi þess að fá innlegg og álit ungmennaráðs. Þorbjörg Þorvaldsdóttir nefndi áætlun í Hafnarfirði sem vert væri að skoða, Margrét Bjarnadóttir ræddi hvort kennarar gætu gert meira varðandi fræðslu og þyrfti þá ekki alltaf utanaðkomandi aðila og Harpa Þorsteinsdóttir nefndi rannsóknir á ungu fólki og hvatti til endurgjafar upplýsinga til barna og ungmenna.

Forseti bæjarstjórnar og formaður skólanefndar bentu á nýja skólastefnu þar sem margt er ávarpað til að gera betur. Beindi formaður skólanefndar því til ungmennaráðs að senda inn tillögur til skólanefndar og það yrði skoðað.