Forvarnarvika Garðabæjar.
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
5. fundur
Ungmennaráð hefur ákveðið að gera forvarnarmyndbönd fyrir forvarnarviku Garðabæjar, líkt og gert var fyrir nokkrum árum. Það var velt steinum hvernig ungmennaráðið vill hafa myndböndin. Fulltrúar ungmennaráðsins munu sjálf ekki fara með stórt hlutverk í myndböndunum heldur mun ráðið reyna að fá þekkta einstaklinga í þjóðfélaginu sem þau líta á sem fyrirmyndir fyrir ungmenni til þess að ræða ýmisleg málefni tengd hugtakinu "samskipti".
Markmiðið er að fá 16 einstaklinga til þess að vera í myndböndunum. Íþróttafólk, leikara, söngvara og áhrifavalda. Einnig er markmiðið að myndböndin séu í svipuðum stíl og Sjúkást myndböndin.
Ungmennaráð Garðabæjar
02
5. fundur
Valgerður Eyja formaður ungmennaráðs fór létt yfir áfangaskýrslu ÍTG varðandi ungmennahús. Valgerður Eyja og Hrannar Bragi Eyjólfsson formaður ÍTG hafa verið í miklum samskiptum og kom Valgerður aðeins að áfangaskýrslunni sjálfri, þ.e.a.s. hvernig ungmennaráðið sér fyrir sér að starfsemin myndi ganga fyrir sig.
Ungmennaráð Garðabæjar
03
4. fundur
Allir fulltrúar fá dagskrá fundar senda einum/tveimur dögum fyrir fund. Öllum fulltrúum er skylt að upplýsa sig um dagskrá fundar og undirbúa sig áður en þeir mæta á fundinn.
Ungmennaráð Garðabæjar
04
4. fundur
a. Hvaða starfsemi ætti að vera í ungmennahúsi?
i. Aðskilin rými
1. Aðstaða til þess að læra, bæði einstaklings og fyrir hópavinnu
2. Aðstaða til að vera með vinum
ii. Leikir og spil
iii. Kósý aðstaða
1. Sófar
iv. Hátalari
v. Örbylgjuofn / lítil eldhús aðstaða
vi. Klúbbastarf
vii. Tölvur
viii. Prentari
ix. Starfsfólk sem getur aðstoðað ungmenni við t.d. Heimalærdóm
x. Tónlistaraðstaða / aðstaða til að troða upp
xi. Baðherbergi
xii. Allskonar litlir hlutir?
1. Reiknivélar
2. Hleðslutæki
xiii. Sjónvarp
b. Hvað væri lágmarksaðstaða sem þyrfti að koma upp til að opna ungmennahús?
i. Baðherbergi
ii. Aðskilin rými, tvö rými
iii. Sófar
iv. Borð
v. Stólar
vi. Innstungur
vii. Einn starfsmann í hlutastarfi, Berglind forvarnarfulltrúi er til í að starfa í ungmennahúsinu til að byrja með
viii. Borðspil, spilastokkar
c. Hvar gæti ungmennahúsið verið?
i. Heppileg staðsetning, s.s. Nálægt miðbæ, FG, tónlistarskóla o.s.frv.
ii. Eitthvað húsnæði í bænum sem raunhæft væri að gera að ungmennahúsi. Þar þarf að hafa ýmislegt í huga. Er húsið í eigu bæjarins? Þarf að leigja? Hver yrði kostnaðurinn?
1. Miðgarður
a. Ef strætó gengur lengur / aðgengi betra
2. Grósku salur
3. FG
a. Nefndarherbergin niðri?
Ungmennaráð Garðabæjar
05
3. fundur
Freyja Huginsdóttir fulltrúi í ungmennaráði ræddi samgöngur. Ungmenni eiga erfitt með að koma sér heim á kvöldin eftir tómstundastarf þar sem Strætó er oft hættur að ganga á þeim tíma og slíkt er ekki viðunandi. Ungmenni vilja vera frjáls ferða sinna og ekki hafa allir þann möguleika að fá foreldri eða systkini til þess að sækja sig. Þau vilja tryggja að ungmenni í Garðabæ geti treyst á Strætó og komist heil á húfi heim.
Öflugar almenningssamgöngur hafa einnig jákvæð áhrif á umhverfið. Allt er þegar þrennt er - frelsi, öryggi og bætt umhverfi.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, fulltrúi bæjarins í stjórn Strætó nefndi að þessi mál væru í sífelldri skoðun og reynt væri að bæta þjónustuna. Nefndi hann að verið væri að skoða nýtt app sem ætti að bæta utantímaþjónustuna. Vakti hann einnig athygli á nýjum rafstrætóum í Garðabæ. Almar Guðmundsson bæjarstjóri, minnti á að allt kostar og nú er hlutur Garðabæjar hálfur milljarður í rekstrinum. Sara Dögg Svanhildardóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir tóku undir röksemdir vegna öryggis- og umhverfissjónarmiða og aukin notkun vagna væri besta leiðin til sýna meiri þörf fyrir þjónustuna.
Ungmennaráð Garðabæjar
06
3. fundur
Emilía Ósk Hauksdóttir fulltrúi í ungmennaráði ræddi vöntun á aðstöðu fyrir ungt fólk. Rakti hún verkefnið sem verið hefur til skoðunar í langan tíma. Það sé þörf og vöntun á aðstöðu þar sem fólk getur hist, lært saman, unnið að listsköpun og eflt félagsleg tengsl. Nefndi hún dæmi um það sem vel er gert í öðrum sveitarfélögum.
Einnig vitnaði Emilía í Berglindi M. Valdimarsdóttur, forvarnarfulltrúa FG sem telur mikla þörf á ungmennahúsi. Oft á tíðum er ekki mikið í boði fyrir ungmenni á þessum aldri og því eru mörg ungmenni sem leitast út í drykkju eða annað óæskilegt. Það hafa ekki allir áhuga á því að fara í ræktina eða stunda skipulagt íþróttastarf og því telur hún þetta mikilvægt skref fyrir Garðabæ til þess að mæta þörfun ungmenna og auka félagsleg tengsl og andlegan líðan.
Í umræðum bæjarstjórnarfulltrúa kom fram að málið hefur legið í dvala m.a. vegna Covid og eins var málið tengt endurskoðun á húsnæði Betrunarhússins á Garðatorgi sem varð ekki eins og til stóð um tíma. Sigríður Hulda Jónsdóttir bæjarfulltrúi benti á að skoða möguleika varðandi Miðgarð og Harpa Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi hvatti til þess að eiga meira samtal um málið.
Eftir umræðu lagði forseti bæjarstjórnar fram eftirfarandi tillögu.
"Ungmennaráð og bæjarstjórn Garðabæjar eru sammála um fara í hugmyndavinnu og þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í bænum. Verði meðal annars byggt á fyrri vinnu Íþrótta og tómstundaráðs um sama mál. Fulltrúar úr íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði skulu vinna að málinu í sameiningu og leggi fram áfangaskýrslu fyrir lok september 2024."
Tillagan var samþykkt af öllum fulltrúum ungmennaráðs og bæjarstjórnar.
Ungmennaráð Garðabæjar
07
3. fundur
María Draumey Kjærnested fulltrúi ungmennaráðs ræddi almennt um fræðslu í skólum. Ýmislegt mætti bæta t.d. fjármálalæsi, lestur launaseðla ofl. Ungmenni í Garðabæ kalla eftir meiri fræðslu en þá helst um fíkniefni, kynfræðslu, samskipti, skyndihjálp og kynbundið ofbeldi. Hvað varðar fræðslu í skólum þá virðist vanta samræmi á milli skóla því ekki allir skólar í Garðabæ fá sömu fræðslu. Á ungmennaþinginu var rætt um Sjúkást kynninguna sem öll ungmenni ættu að fá áður en þau fara á Samfés.
Einnig var rætt um að það vanti meiri samfellu í kynfræðslu og nauðsyn þess að byrja fyrr en síðar með fræðsluna. Mælingar og tölur um kynbundið ofbeldi væru háar.
Ungmennaráðið er að vinna að úrvinnslu þeirra hugmynda sem fengust af Ungmennaþingi Garðabæjar 2023 og að koma þeim á framfæri og í framkvæmd sem fyrst.
Til máls tóku bæjarfulltrúar, Gunnar Valur Gíslason, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Harpa Þorsteinsdóttir. Hvöttu þau ungmennaráð til dáða og þökkuðu það sem lagt var til málanna. Gunnar Valur Gíslason ræddi vinnu við jafnréttisáætlun og mikilvægi þess að fá innlegg og álit ungmennaráðs. Þorbjörg Þorvaldsdóttir nefndi áætlun í Hafnarfirði sem vert væri að skoða, Margrét Bjarnadóttir ræddi hvort kennarar gætu gert meira varðandi fræðslu og þyrfti þá ekki alltaf utanaðkomandi aðila og Harpa Þorsteinsdóttir nefndi rannsóknir á ungu fólki og hvatti til endurgjafar upplýsinga til barna og ungmenna.
Forseti bæjarstjórnar og formaður skólanefndar bentu á nýja skólastefnu þar sem margt er ávarpað til að gera betur. Beindi formaður skólanefndar því til ungmennaráðs að senda inn tillögur til skólanefndar og það yrði skoðað.
Ungmennaráð Garðabæjar
08
3. fundur
Valgerður Eyja Eyþórsdóttir formaður ungmennaráðs rakti helstu verkefni ráðsins á undanförnum mánuðum. Ráðið hefur fengið aukið vægi og þróast mikið á síðustu árum og finna fyrir því að bærinn tekur ráðið alvarlega og felur því fleiri verkefni.
Ungmennaráð hélt vel heppnað ungmennaþing í október sl. Fulltrúar hafa setið í stýrihóp Barnvæns sveitarfélags, farið á ráðstefnur m.a. á vegum Unicef og tekið þátt og verið sýnileg á stórum viðburðum félagsmiðstöðva bæjarins svo eitthvað sé nefnt.
Til máls tóku ýmsir bæjarstjórnarfulltrúar og þökkuðu fyrir góða kynningu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar gat þess sérstaklega að fundargerðir ungmennaráðs væru mikilvægar og teknar til umfjöllunnar sbr. aðrar fundargerðir nefnda.
Ungmennaráð Garðabæjar
09
2. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar stefnir á fund með bæjarstjórn í mars. Helstu málefni sem ungmennaráð vill ræða við bæjarstjórn eru:
- Lagfæra strætókerfið á leiðum nr. 22 og 23.
- Ungmennahús.
- Taka tillit til æfinga í stað þess að fresta þeim.
- Auka fíkniefnafræðslu til ungmenna, helst að byrja fræðslu strax í 7. bekk
- Opnunartími sundlauga, hafa opið til 22 alla daga, sérstaklega laugardaga.
- Strætó nr. 23 hætta að taka hádegispásur
- Fræðsla til þjálfara hjá Stjörnunni um samskipti, einelti ofl.
- Bæta við tómstundum í Urriðaholtið.
- Mikilvægi þess að samskiptasáttmálinn gildi fyrir íþrótta- og tómstundastarf.
Ungmennaráð Garðabæjar
10
2. fundur
Þann 7. febrúar fer ungmennaráð Garðabæjar á fund með ungmennaráði Reykjanesbæjar. Ungmennaráðið þar hefur verið að vinna flott starf síðustu ár og viljum við endilega læra af þeim sem og deila okkar reynslu.
- Hvaða verkefni eru þau að vinna að þessa dagana og næstu verkefni.
- Hvernig skipta þau upp hlutverkum.
- Hvernig fer ferlið fram hjá þeim um framkvæmdir hugmynda.
- Eru þau með ungmennahús.
- Hvernig auglýsa þau ungmennaráðið.
- Hversu oft funda þau á ári.
- Hvernig skipuleggja þau sig.
- Hvernig láta þau raddir ungmenna heyrast.
Ungmennaráð Garðabæjar
12
1.. fundur
Ákveðið var að velja hugmyndir frá ungmennaþinginu sem við teljum raunhæft að koma í framkvæmd sem fyrst.
Hugmyndirnar eru:
Betri strætóleiðir út á Álftanes og í Urriðaholtið
Hopp hjól á Álftanesið
Meiri fræðsla í skólana
Fleiri sameiginlegir viðburðir félagsmiðstöðva í Garðabæ
Hafa samband við Stjörnuna vegna ábendinga um samskiptavanda hjá unglingahópum innan Stjörnunnar.
Ungmennaráð Garðabæjar
13
1.. fundur
Athuga með að fá fund með Eddu Björg Sigurðardóttur, grunn- og tónlistarskólafulltrúa, til þess að ræða hugmyndir og ábendingar þátttakenda ungmennaþingsins um hvernig bæta má skólastarf í Garðabæ.
Valgerður Eyja, formaður ungmennaráðs var boðið að taka þátt í vali á "Garðbæingurinn okkar".
Ungmennaráð Garðabæjar
14
1.. fundur
Janúar - fyrsti fundur ársins. Athuga með heimsókn til ungmennaráðs Reykjanesbæjar.
6. febrúar - vinnufundur, undirbúningur fundar með bæjarstjórn - Skipuleggja sumarhátíð.
5. mars - Ath. með fund með bæjarstjórn og fulltrúa félagsmálavals/nemendaráðs.
2. apríl - Sumarstörf, atvinnu- og frístundatækifæri ungs fólks.
7. maí - Skýrsla vetrarins - endurmat verkefna.
Fá fund með skólaskrifstofu.